Þrjú pör af ungbarnahosum, stærð 0 - 4 mánaða. Fínt að grípa í svona smáprjón þegar horft er á sjónvarpið á kvöldin. Uppskriftin er úr bókinni Sokkaprjón, en ég notaði fínni prjóna en gefið er upp, ég prjónaði á prjóna no. 2,5.
Þessa peysu prjónaði ég um páskana. Uppskriftin er í nýjasta tölublaði Húsfreyjunnar. Hún er prjónuð úr tvöföldum plötulopa á prjóna nr. 5,5. Sniðið er skemmtilegt því hún er aðsniðin í mittið.
Ég hafði mína gráa í stað svartrar og þurfti því að endurraða litunum í munstrinu aðeins, en ég er ánægð með útkomuna. Svo bætti ég við smá kraga.