miðvikudagur, 8. apríl 2009

Vesti úr lopa

Þetta vesti var ég að ljúka við. Fann uppskriftina á þessu bloggi, og er hún frá Garnstudio. Uppskriftin gerir ráð fyrir að þetta sé toppur úr bómullargarni á prjóna nr.4,5, svo ég ákvað að prófa hana í léttlopa.
Reyndar prjónaði ég bolinn öðruvísi, tók inn í mittið og jók aftur út. Uppskriftin er víðari.
Hér eru svo 40 bútar í innri kantinn á stjörnuteppinu og 4 bútar í hornin.

2 ummæli:

  1. Vestið kemur mjög vel út, hlakka til að sjá þig í því. Það er greinilega ekki verið að slá slöku við í handavinnunni í fríinu, þú værir örugglega til í það sama og ég þ.e. að gerður verði góður starfslokasamningur svo tími verði til hannyrða :)

    SvaraEyða
  2. Vesten er nydelig. Flott farge og form, denne likte jeg.

    SvaraEyða