miðvikudagur, 6. janúar 2010

Möbius sjal

GLEÐILEGT ÁR!!
Þetta sjal, sem kennt er við Möbius, var "jólaprjónið" mitt í ár. Mig langaði alltaf til að prófa Kauni garnið, og svo þegar hún Ingibjörg Jónsdóttir, vinkona mín, sýndi mér uppskrift að þessu sjali, fannst mér upplagt að prófa garnið á því. Garnið pantaði ég frá Bót á Selfossi og geymdi það til jóla. Svo var ég bara þrjá daga að prjóna það. Liturinn kemur ekki alveg rétt út á myndinni. Það er rautt, en ekki svona bleikt eins og myndin sýnir. Uppfitjunin er dálítið óvenjuleg, maður fitjar upp 150 lykkjur, og býr svo líka til lykkjur úr bandinu sem myndast í botni hverrar lykkju, þannig að lykkjufjöldinn verður 300, og sjalið prjónast upp og niður út frá miðju. Ég hef séð uppskrift að Möbius sjali í bókinni Prjónaperlum, sem kom út fyrir jólin. Þar er það úr einbandi, og uppfitin er eitthvað öðruvísi en ég gerði. Hér er uppskriftin sem ég notaði.

4 ummæli:

  1. Vá þetta er flott! Þú er greinilega galdrakona ég skil ekkert hvernig þetta er gert :(

    SvaraEyða
  2. Möbius kemur ágætlega út prjónaður. Sting upp á að þú gerir annað með tveimur hringjum í sitthvorri litasamsetningunni og hafir þá samfasta (þ.e. annan snúinn utan um hinn). Ég hef séð þetta í saumaskrap.

    SvaraEyða
  3. Sæl Hellen
    ég kíki stundum inn á bloggið þitt og hef gaman af. Flott handavinnan þín :). Hvað fitjar maður upp margar lykkjur í svona möbíus?
    kveðja Katrín

    SvaraEyða
  4. Hehe, auðvitað stendur það í blogginu. 300 lykkjur. Bara að lesa textann betur :)
    kv Katrín

    SvaraEyða