Aftur er ég búin að sauma verkefnatösku fyrir prjónaskapinn.
Nú vantaði mig stóra tösku.
Venjulega hef ég geymt svona stór verkefni í körfum, en svona töskur eru miklu þægilegri.
Hér rúmast allt sem þarf í fullorðinspeysu.
Efnin eru gömul frá IKEA og keypti ég þau nýlega á bílskúrssölu í Borgarnesi.
Sammála um að það sé þægilegra að hafa verkefnin í töskum og þá sérstaklega í svona fallegum töskum.
SvaraEyða