Nú er ég búin að prjóna aðra húfu á ömmudrenginn.
Þetta er húfan Ösp sem ég prjónaði á yngstu ömmustelpuna fyrir rúmu ári.
Ég gerði minnstu stærðina á hann.
Þessi húfa er bæði skemmtileg og fljótprjónuð.
Garnið, Drops merino extra fine, og dúskinn, keypti ég í Gallery Spuna.
Uppskriftin er frá Knillax.