Þessa peysu prjónaði ég á aðra tengdadótturina, að hennar beiðni. Hún er úr bókinni Klompelompe Strikkefest. Mjúk og hlý og fer henni mjög vel. Peysan er prjónuð úr Lanett og Silk Mohair frá Sandnes á prjóna nr. 5 í stærðinni XS. Hún er frekar stutt og víð og ermarnar aðeins síðar.
Fallega unnið verk! Mamma gerir líka oft svona hlýjar ullarpeysur fyrir mig. Þau eru dásamleg.
SvaraEyða