mánudagur, 19. október 2026

Skólavettlingar, framhald


 Í síðustu færslu skrifaði ég um vettlinga sem ég prjónaði á barnabörnin fjögur. Þegar þau fengu þá afhenta kom í ljós að þeir sem ég prjónaði á strákinn, sem er nýlega orðinn 7 ára, voru of litlir, aðallega of stuttir. Fyrst ætlaði ég bara að lengja þá, en hætti við það og prjónaði tvö ný pör á hann. Ég bætti við 2 lykkjum á víddina (var með miðstærð á hann af Randalíusi) lengdi þumalinn og hafði lengdina á vettlingnum öllum næstum eins og á stærstu stærðinni. Þeir smellpössuðu á hann og hefðu alls ekki mátt vera minni. Hann er greinilega með lengri hendur en ég áttaði mig á.

Svo færði ég merkin af minni vettlingunum yfir á þá nýju. Þeir minni koma í góðar þarfir annars staðar.

Annað sem ég breytti núna í uppskriftinni eftir að hafa mátað á eina af stelpunum á meðan ég var að prjóna, var að taka örar úr í lokin. Í uppskriftinni segir að alltaf eigi að prjóna eina umferð á milli úrtökuumferða, en ég gerði það núna eftir þrjár fyrstu úrtökurnar en tók síðan úr í hverri umferð. Hún vildi ekki hafa svona mikla totu fremst á vettlingnum, og ég var alveg sammála henni, þetta er miklu betra svona.

sunnudagur, 18. október 2026

Skólavettlingar

Ég prjóna alltaf nýja vettlinga handa barnabörnunum á haustin. Tvö pör á hvert. Átta pör samtals.

 

Ég hef notað sömu uppskriftina undanfarið, Randalíus, sem er frí á heimasíðu Storksins. Hún er mjög fín, og það besta er að þumallinn kemur út úr hliðinni þannig að það er sama á hvora hendina vettlingurinn fer.  Svo er það gríðarlegur kostur að þumallinn er kláraður áður en belgurinn er prjónaður áfram niður.


Svo merki ég hvern einasta vettling, hef alltaf gert það og lítið sem ekkert hefur týnst.

Ég prjóna alltaf núna úr Fiesta frá Drops, mikið af mislitu og sprengdu garni sem gaman er að prófa. Dokkurnar nýtast líka mjög vel, ein dokka er nóg í eitt par, og lítill afgangur.

þriðjudagur, 13. október 2026

Hulltights og Minsten jakke




Litla daman sem fæddist í lok júlí var skírð í byrjun september. 
Ég prjónaði þessi föt handa henni í skírnargjöf.




Buxurnar eru eftir uppskrift sem heitir Hulltights og er í bókinni Klompelompe, strikk til hele familien.


Uppskriftin af peysunni er í sömu bók og heitir hún Minsten jakke. Hef ég prjónað nokkrar svona. Bæði buxurnar og peysan eru í stærð 6-12 mánaða.
Garnið er Drops baby merino.

Svo þrívíddarprentaði ég auðvitað pakkaskrautið. Ég hef reyndar prentað fleiri pakkaskreytingar en ég gleymi oft að taka myndir af því sem ég geri í prentaranum.