Ég prjóna alltaf nýja vettlinga handa barnabörnunum á haustin. Tvö pör á hvert. Átta pör samtals.
Ég hef notað sömu uppskriftina undanfarið, Randalíus, sem er frí á heimasíðu Storksins. Hún er mjög fín, og það besta er að þumallinn kemur út úr hliðinni þannig að það er sama á hvora hendina vettlingurinn fer. Svo er það gríðarlegur kostur að þumallinn er kláraður áður en belgurinn er prjónaður áfram niður.




gaman að fylgjast mér hérna hjá þér, ég nota líka alltaf þessa uppskrift, einföld og góð. (mín síða: https://fridabraga.blogspot.com/ )
SvaraEyða