sunnudagur, 1. febrúar 2009

Dagatalsteppið og eitt til viðbótar

Í dag tókst mér að leggja lokahönd á þetta veggteppi.
Sumarið 2007 var ég á ferð um Akureyri og fór að
sjálfsögðu í Quiltbúðina. Þar keypti ég m.a. almanak, sem heitir Quilter´s Block-in-a-Day Calendar eftir Debby Kratovil. Eins og nafnið gefur til kynna, þá er snið að einni bútasaumsblokk á dag. Ég valdi þær blokkir sem fylgdu afmælisdögum fjölskyldunnar, brúðkaupsdegi okkar hjóna og fleiri merkilegum dögum, og
svo þær, sem mér þóttu fallegar.
Blokkirnar í almankinu eru ekki allar af sömu stærð, svo ég teiknaði þær allar inn í EQ6, prentaði út munstrið og saumaði með pappírssaumi. Ég hafði blokkirnar 8 tommur að stærð.


Mér finnst mjög gaman að handstinga, þótt ég noti yfirleitt saumavélina til að stinga, því það er miklu fljótlegra, og alls ekki leiðinlegt. En ég ákvað því að handstinga þetta teppi, því hver blokk er mismunandi og því gaman að finna út fyrir hverja og eina hvernig best er að stinga. Ég stakk mikið, og á kannski eftir að bæta við sporum.



Þetta teppi tók ég niður af veggnum í holinu til að hengja hitt upp, og ákvað ég að láta fylgja mynd af því. Það er nokkurra ára gamalt, og er hugmyndin mín, en ég notaði snið af körfu eftir Carol Doak. Þetta var sem sagt fyrir daga EQ6.




Teppið er handstungið.





1 ummæli:

  1. Dagatalateppið kemur mjög vel út, myndirnar af húfunum eru frábærar og myndu sóma sér vel sem bakgrunnur einhversstaðar.

    Síðan þín er mjög flott, orðin mín uppáhaldssíða.
    Kv. Anna Björg.

    SvaraEyða