Þessi peysuuppskrift er úr bókinni Prjónað úr íslenskri ull. Hún er úr léttlopa, og ég notaði mest afganga. Uppskriftin heitir Dísa.
Heildartala yfir síðuflettingar
fimmtudagur, 26. apríl 2012
sunnudagur, 8. apríl 2012
Blár ungbarnakjóll
Nú er orðið langt síðan ég hef sett nokkuð hér á bloggið, enda hefur ekki verið mikið að sýna. Allur tími og orka hefur farið í búferlaflutninga okkar hjóna. Ég náði þó að prjóna þennan kjól á minnstu frænkuna mína, hana Salvöru Veigu, sem varð eins árs þann 5. mars. Uppskriftin er úr Prjónablaðinu Ýr, úr blaði nr. 42.
Ég tók líka upp saumavélina til að sauma gardínur fyrir stofuna, fimm lengjur. Það var voða gott að sauma dálítið aftur. Nú erum við á fullu við að koma okkur fyrir á nýju heimili og nýtt saumaherbergi er að taka á sig mynd.
GLEÐILEGA PÁSKA!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)