Þessa pottaleppa fann ég á síðu garnstudio.com. Ég prjónaði aðra eftir uppskrift á síðunni þeirra fyrir nokkrum árum og það eru með bestu pottaleppum sem ég á. Þeir eru prjónaðir í hring og lagðir tvöfaldir saman og saumaðir á endunum og verða þykkir og góðir. Ég notaði Muskat frá Gallery spuna og prjóna nr. 3.
Heildartala yfir síðuflettingar
Sýnir færslur með efnisorðinu Pottaleppar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Pottaleppar. Sýna allar færslur
föstudagur, 23. janúar 2026
miðvikudagur, 28. desember 2022
Pottaleppar
Þessir pottaleppar hafa aldrei ratað hér inn á bloggið mitt þótt nokkur ár séu síðan ég saumaði þá. Ég notaði venjulega saumavél, enda hafði ég ekki eignast útsaumsvél þá. Þetta munstur er úr bók sem heitir Redwork Designs, og venjan er að sauma þannig munstur með aftursting. En mér finnst svo miklu skemmtilegra að nota saumavél en að sauma svona myndir í höndum. Það er seinlegt, ég notaði þrefalda beina sauminn í vélinni og fór svo spor fyrir spor í strikin.
fimmtudagur, 12. desember 2019
Pottaleppar
Um síðustu jól vantaði mig eitthvað að prjóna og fitjaði upp á þessum pottaleppum, prjónaði þá en gekk aldrei frá þeim.
Það gerði ég hinsvegar í gærkvöldi.
Uppskriftin er hér.
Garnið, Mandarin Naturell, keypti ég í Fjarðarkaupum.
laugardagur, 12. maí 2018
Eplapottaleppar
Sumarlegir pottaleppar í eldhúsið. Sumum finnast þeir kannski jólalegir, en ekki mér.
þriðjudagur, 13. september 2016
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)





