Heildartala yfir síðuflettingar
laugardagur, 31. október 2026
Haust og hrekkjavaka 🕷️🕸️👻🎃 í 3D
fimmtudagur, 29. október 2026
Vélútsaumur
Það er alltaf gaman að setjast við útsaumsvélina og sauma út í handklæði og viskastykki. Ég á mörg góð viskastykki sem er upplagt að sauma í og mér finnst skemmtilegast að prófa mig áfram með munstur í marglit eða röndótt og köflótt viskastykki. Hér sést munstrið ekki mikið en samt nóg.
Þegar ég saumaði í þetta hér að ofan vandaði ég mig sérstaklega við að setja í rammann svo munstrið kæmi í miðjuna á röndinni, en svo kom það svona skakkt út. Ég skildi ekkert í þessu og rannsakaði málið og kom þá í ljós að það er ekki miðjusett í útsaumsskránni sem ég keypti. Ég hef ekki lent í þessu áður og er búin að kaupa nýtt stykki því ég ætla að þrjóskast við að fá þetta rétt. Ætla samt alveg að nota þetta í eldhúsinu heima hjá mér.
laugardagur, 24. október 2026
Vorflétta tvö
Í fyrra prjónaði ég sjaltrefil eftir uppskrift sem heitir Vorflétta og er eftir Auði Björt. Ég notaði hann svo til látlaust síðasta vetur svo ég prjónaði annan til að eiga til skiptanna. Uppskriftin gerir ráð fyrir að ekki þurfi meira garn en eina 400 metra og 100 gramma hespu, og það gekk upp og vel það. Ég notaði 4 mm prjóna og handlitað garn úr litla lagernum mínum og man ekkert hvaðan það kom. Það skemmtilega við uppskriftina er að sjaltrefillinn er eins á réttunni og röngunni.
mánudagur, 19. október 2026
Skólavettlingar, framhald
Í síðustu færslu skrifaði ég um vettlinga sem ég prjónaði á barnabörnin fjögur. Þegar þau fengu þá afhenta kom í ljós að þeir sem ég prjónaði á strákinn, sem er nýlega orðinn 7 ára, voru of litlir, aðallega of stuttir. Fyrst ætlaði ég bara að lengja þá, en hætti við það og prjónaði tvö ný pör á hann. Ég bætti við 2 lykkjum á víddina (var með miðstærð á hann af Randalíusi) lengdi þumalinn og hafði lengdina á vettlingnum öllum næstum eins og á stærstu stærðinni. Þeir smellpössuðu á hann og hefðu alls ekki mátt vera minni. Hann er greinilega með lengri hendur en ég áttaði mig á.
Svo færði ég merkin af minni vettlingunum yfir á þá nýju. Þeir minni koma í góðar þarfir annars staðar.
Annað sem ég breytti núna í uppskriftinni eftir að hafa mátað á eina af stelpunum á meðan ég var að prjóna, var að taka örar úr í lokin. Í uppskriftinni segir að alltaf eigi að prjóna eina umferð á milli úrtökuumferða, en ég gerði það núna eftir þrjár fyrstu úrtökurnar en tók síðan úr í hverri umferð. Hún vildi ekki hafa svona mikla totu fremst á vettlingnum, og ég var alveg sammála henni, þetta er miklu betra svona.
sunnudagur, 18. október 2026
Skólavettlingar
Ég prjóna alltaf nýja vettlinga handa barnabörnunum á haustin. Tvö pör á hvert. Átta pör samtals.
Ég hef notað sömu uppskriftina undanfarið, Randalíus, sem er frí á heimasíðu Storksins. Hún er mjög fín, og það besta er að þumallinn kemur út úr hliðinni þannig að það er sama á hvora hendina vettlingurinn fer. Svo er það gríðarlegur kostur að þumallinn er kláraður áður en belgurinn er prjónaður áfram niður.

















