Heildartala yfir síðuflettingar

fimmtudagur, 22. júní 2023

Fleiri litlir púðar

Ég saumaði nokkra litla púða fyrir nokkru og hafði í körfu fyrir barnabörnin með leikföngunum hér heima.  Þau hafa leikið sér ótrúlega mikið með þá, og ein ömmustelpan bað mig um að gera einn handa sér til að taka með heim. Þá saumaði ég auðvitað handa öllum og urðu þeir tveir á mann fyrir rest. Aðal málið hjá þeim var að fá að velja sér dýr og litinn á tvinnanum. Myndirnar eru ekki flóknar, en höfða greinilega til þeirra. Einfalt er stundum best.

Myndirnar eru úr Super designs í útsaumsforritinu mínu. 
 

þriðjudagur, 6. júní 2023

Veggteppi

Á veggnum bak við borðið þar sem ég hef úsaumsvélina saumaði ég teppi sem var að hluta gert í þeirri vél. Nú er ég búin að taka af plássinu sem teppið hafði, teppið orðið of stórt og hefur fengið annan stað. Það er nefnilega þannig að þegar maður á útsaumsvél safnast að manni smátt og smátt töluverður tvinni. 

Útsaumstvinnakeflin eru frekar stór og finnst mér best að geyma þau í hillu. Ég keypti tvær smíðajárnshillur fyrir nokkrum árum á netinu, ætlaðar fyrir naglalakk. Þær taka samtals 60 kefli og eru fullar. Þá bætti ég við myndahillu úr Ikea, fyrst einni. Þær eru akkúrat nógu djúpar til að hægt sé að koma fyrir tveimur röðum af keflum í hillu. Svo bætti ég annarri við í vor og þá saumaði ég þetta litla teppi og lét það passa á vegginn. Blokkina fékk ég í EQ8 forritinu og saumaði með pappírssaumi. Eftir á sá ég að litapallettan í því passar við tvinnakeflin sem hanga allt í kringum það í þessu horni.


 Merkið komið á sinn stað, búið til í Spíralprógramminu í Platínum útsaumsforritinu,

föstudagur, 2. júní 2023

Júníálfur


 Júníálfurinn fór upp á vegg í gær. Eins og áður hefur komið fram ætla ég að sauma álf fyrir alla mánuði ársins og láta litina í hattinum skírskota til árstíðarinnar á einhvern hátt. Hér lét ég fánalitina ráða ferð í tilefni þjóðhátíðardagsins.