Þetta er kjóllinn Alda. Hann er prjónaður úr Alba sem fæst í Litlu prjónabúðinni.
Uppskriftin er líka í 1. tölublaði Húsfreyjunnar frá 2014, og notaði ég hana.
Stærðin er bara upp í 9 mánaða, svo ég dreif mig í að prjóna kjólana. Þegar maður á tvær jafngamlar ömmustelpur, verður maður að gera eins á báðar, og ég á mjög erfitt með að velja mismunandi liti handa þeim. Það gerist bara ef foreldrarnir velja litinn.
Þeessir eru fallegir. Ég er alltaf svo hrifin af grænum í öllum tónum.
SvaraEyða