Mig hefur lengi langað til að styrkja verkefnið Jól í skókassa en ekki fundið mig í því að tína til allt sem til þarf og passa nú vel upp á að ekkert vanti í kassann og yfirleitt að taka ákvarðanir hvað eigi að velja. Ég veit af starfi meðal flóttakvenna frá Úkraínu sem hafa það sem verkefni allt árið að útbúa jólagjafir í skókassa handa börnum í heimalandi sínu sem eiga um sárt að binda. Starfið er í umsjón öflugra, íslenskra sjálfboðaliða þar sem ein er fremst í flokki.
Hins vegar finn ég mig í að aðstoða þær við að búa til hluti sem hægt er að láta í kassana og þangað fór allt það sem er á þessum myndum. Þvottastykkin eru úr Ikea og saumað í þau í Brother Disney vélinni minni. Ég spretti efstu brúninni upp og fjarlægi stóra miða sem eru á þeim og færi til hankana ef þeir eru ekki almennilega miðjusettir, og sauma svo brúnina niður aftur. Hundarnir eru prentaðir í Bambu Lab þrívíddarprentaranum. Vettlingarnir eru prjónaðir úr Drops Fiesta og eftir vettlingauppskriftinni einu sem ég nota, Randalíus, sem er frí á heimasíðu Storksins.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli