Heildartala yfir síðuflettingar

mánudagur, 27. janúar 2014

Saumaherbergið 5 ára

 

Bloggið mitt varð 5 ára á laugardaginn, 25. janúar. Af því tilefni ákvað ég að setja inn nokkrar myndir af saumaherberginu. Eiginmaðurinn hannaði og smíðaði þetta borð handa mér til að fella vélina niður í.

Þetta er fyrsta saumavélin, sem ég eignaðist, rúmlega tvítug, Singer futura. Hún var fyrsta tölvustýrða saumavélin á markaðnum. Hún var alveg frábær og með ótrúlega flotta fídusa. Ég notaði hana þar til hún gaf sig.

Einu sinni kom ég öllum handavinnubókunum fyrir í þessum skáp, en get það ekki lengur.

 

Hér stendur svo overlockvélin mín, ávallt reiðubúin.

Þetta sníðaborð smíðaði minn heittelskaði líka handa mér.

 

Hér geymi ég svo megnið af bútasaumsefnunum.

Þetta er annað saumaherbergið sem ég eignast. Hið fyrra var teiknað sérstaklega fyrir mig þegar við byggðum við heimili okkar árið 2004. Fyrir tveimur árum fluttum við, og þá fékk ég annað barnaherbergið í húsinu, og húsbóndinn hitt.

 

5 ummæli:

  1. Til hamingju með bloggafmælið! Dásamlegt að sjá þessar myndir úr saumaherberginu þinu, ég held að þetta toppi öll önnur saumaherbergi.

    SvaraEyða
  2. Til hamingju með afmælið, flott aðstaða hjá þér alltaf gaman að skoða bloggið þitt maður fær alltaf mikinn innblástur og vilja til að gera eitthvað fallegt eftir að hafa kíkt hér inn ;)

    SvaraEyða
  3. Sigríður Daníelsdóttir27. janúar 2014 kl. 23:09

    Mikið finnst mér gaman að skoða bloggið þitt - og geri það oft. Þú ert ótrúlega afkastamikil finnst mér og handavinnan þín bæði bútasaumurinn og prjónastykkin algjört augnakonfekt.

    SvaraEyða
  4. Gratulerer med blogjubileum! Du har en flott og inspirerende blog, og utrolig mye fint du har laga!
    Orden på syrommet har du også :-)
    Håper du fortsetter med blog i mange år framover!
    Klem Oddbjørg

    SvaraEyða
  5. Til lukku með bloggafmælið. Mikið er herbergið flott og greinilega mikil sköpun í gangi þarna.

    SvaraEyða