Þennan kraga prjónaði ég í samprjóni, KAL, sem Prjónakistan á facebook stóð fyrir. Þetta var óvissuprjón, og áttum við að nota 3 liti, en líka mátti nota allt að 16 liti og taka alltaf nýja og nýja munsturliti. Prjónaskapurinn stóð yfir í 9 daga, og fengum við uppskriftaskammtinn daglega á fb. Þetta var mjög skemmtilegt, eftirvænting á hverjum degi, og ég er mjög ánægð með kragann.
Þessi mynd er af síðu Prjónakistunnar, kraginn er hár og flottur, og liggur vel að hálsinum.
Þessi er frábær... og samprjónið fór alveg framhjá mér :)
SvaraEyðaVery interesting blog! I will followyou.
SvaraEyðaFerlega er þetta flott. Ég sá þetta en tók ekki þátt, hefði kanski átt að gera það.
SvaraEyðaBestu kveðjur
Kíki stundum á skemmilega bloggið þitt og dáist að fallegu hlutunum sem þú gerir. Þessi færsla hefur farið framhjá mér, en gaman að rekast á þetta núna þegar ég er að huga að nýju samprjóni.
SvaraEyðaKv. Guðbjörg