Þessi uppskrift er í Lopa 29 og heitir "Handtak".
Í handavinnuumræðunni á Barnalandi hef ég séð að hjá nokkrum konum, sem hafa prjónað þessa vettlinga, hafa þeir orðið of stórir, en mínir smellpössuðu, og er ég þó frekar handnett.
Ég prjónaði vettlingana fyrir þremur vikum, en nennti aldrei að ganga frá þeim. Skýringuna er að finna á myndinni hér að ofan, en þegar ég var búin að festa alla enda, reyndust þeir vera 98 talsins!
Mjög fallegir vettlingar og litunum er fallega raðað saman.
SvaraEyðaFallegir vetlingar og smekkleg litasamsetning Hellen eins við var að búast af þér.
SvaraEyðaKveðja frá Flúðum
Sæl vertu Hellen!
SvaraEyðaÉg er 23 ára Vesturbæjarmær og datt inn á bloggið þitt fyrir tilviljun. Ofboðslega er þetta allt fínt hjá þér! Sjálf er ég tiltölulega nýfarin að prjóna af alvöru og í haust skilaði ég af mér fyrsta stóra verkefninu: Peysunni "Riddara" úr Lopa 28 sem ég prjónaði á kærastann.
Ég kem til með að kíkja reglulega hér inn í framtíðinni!
Kveðja,
Gyða
Púff, eins og vettlingarnir eru fallegir hefur verið hræðilegt að ganga frá öllum þessum endum. Ég hef nú stolist til að þæfa endana bara í vettlingum fyrir mig (hlýrra), en gengið frá þegar ég var að prjóna á strákana mína.
SvaraEyðaKv. Guðrún Lilja, hin afasystir Úlfhildar Sjafnar
Mér finnst allt sem þú ert að gera mjög fallegt og vettlingarnir eru æðislegir en ég skil þig vel með fjárans endana alla...kemur fyrir á bestu bæjum ...eins er með að klára peysur maður nennir stundum ekki að klára seinni ermina.
SvaraEyðaGangi þér allt í haginn
kv. Villa
Mikið eru þetta fallegir vettlingar. Næst hefurðu spottana og réttunni og lætur þá standa út í loftið. Segir svo fólki að þetta séu "design" vettlingar.
SvaraEyða