Heildartala yfir síðuflettingar

mánudagur, 7. desember 2009

Þjóðleg sería

Hef ég nokkurn tíma minnst á það hversu gaman mér þykir að prjóna úr afgöngum? Þessa uppskrift rakst ég á á netinu, og um leið og ég sá að í hana voru notaðir afgangar af léttlopa, varð ég að prófa hana. Þetta var fljótgert, og ég heklaði utan um 20 perur.
Gerist það þjóðlegra?

3 ummæli:

  1. En flott hjá þér, ég held að ég verði að prófa þessa uppskrift ;o) Takk fyrir kommentin á síðuna mína, ég er nú ekkert sérlega dugleg að svara en reyni að bæta úr því. Ég kíki alltaf á síðuna þína því að mér finnst handavinnan svo falleg hjá þér og svo ert þú líka með svo skemmtilega linka á aðrar handavinnusíður. Takk fyrir mig.

    SvaraEyða
  2. What a great idea, to crochet/virka/hekla the flowers for the garland.

    SvaraEyða