Heildartala yfir síðuflettingar

mánudagur, 5. apríl 2010

Dúkur með pinwheel munstri og viðurkenning

Ég hef lengi ætlað að sauma svona dúk. Ég sá hann í sjónvarpinu fyrir fimm árum í þættinum Innlit/útlit. Þá var farið í heimsókn á gullfallegt heimili, þar sem húsfreyjan er dugleg í bútasaumi. Ég teiknaði munstrið í EQ6 forritinu og dreif mig í þetta.
Ég valdi frekar bjarta liti og mest eru þetta efni frá Thimbleberries, enda hafa þau verið í uppáhaldi hjá mér og það breytist lítið.

Mér fannst hann passa vel á borðstofuborðinu um páskana, vorlegur og léttur.

Bakið og kantana hafði ég úr þessu svakalega rósótta efni, en af því að það er líka frá Thimbleberries þá pössuðu litirnir ágætlega saman.



Þessi viðurkenning barst mér fyrir viku frá Anelie, en hún er finnskur bloggari og handverkskona. Takk, Anelie!! Hún er mjög fjölhæf og gerir fína hluti. Þessi viðurkenning kemur frá Brasilíu og þýðir "blogg með sjarma". Reglan er sú að maður á að senda þetta áfram til 12 annarra bloggara, tengja þá við manns eigið blogg og tengja sig við blogg þess sem sendir þetta, og svo á að senda þessum 12 skilaboð um að þeirra bíði viðurkenning. Eins og margir gera, þá ætla ég ekki að velja ákveðnar 12 manneskjur, heldur langar mig að bjóða sérstaklega íslenskum handavinnukonum, sem blogga um handavinnuna sína, að taka til sín þessa viðurkenningu frá mér. Sem sagt, ef þú bloggar á Íslandi um handavinnuna þína, þá áttu þetta! Mig langar að sjá fleiri handavinnublogg á íslensku, því nóg er af konum hér sem eru að gera flotta hluti.





6 ummæli:

  1. Nydelig duk! Jeg er også veldig glad i Thimbelberries stoffer :o)
    Er Virka fremdeles quiltebutkk hos dere?

    SvaraEyða
  2. Fallegur dúkur hjá þér Hellen eins og allt sem þú setur hér inn og litirnir koma mjög vel út. Takk fyrir viðurkenninguna (eins og þú sérð þá tek ég þetta til mín þar sem ég blogga) ;o)
    Kær kveðja Edda Soffía

    SvaraEyða
  3. Þú ert algjör snillingur Hellen.
    Kveðja Ásta

    SvaraEyða
  4. Þessi dúkur er rosalega fallegur, stungan er líka svo skemmtileg, það hefur tekið tímann sinn að stinga hann, hafðu það gott um helgina, kveðja Anna Björg.

    SvaraEyða
  5. Dúkurinn er mjög fallegur. Þú ert og verður algjör snillingur.
    Góða helgi.Inga

    SvaraEyða