Ég ætlaði nú ekki að setja þetta á bloggið, en læt vaða. Það gerði ég líka þegar ég klippti peysuna í sundur á tveimur stöðum síðasta laugardag. Ég var ekki ánægð með síddina og víddina fyrir neðan mitti. Það var líka flái í listanum.
Svo annað hvort var að henda peysunni upp í skáp eða að reyna að laga þetta. Ég klippti listana af, og klippti svo stykki úr peysunni, við mittislínuna og dálítið fyrir ofan stroffið að neðan.
Þú ert ótrúleg Hellen, að þora þessu. Peysan er mjög falleg svona. Vildi að ég hefði bara lítinn hluta af þessu hugrekki þínu.
SvaraEyða