Heildartala yfir síðuflettingar

sunnudagur, 1. mars 2026

Kusk

Mig langaði alltaf að prjóna peysuna Kusk, bæði vegna sniðsins og eins til að nota þessar stöku hespur mínar í eitthvað annað en sjöl. Ég átti tvær hespur sem voru mjög líkar og þær mynda dökku, breiðari rendurnar. Þær voru hvor frá sínum litaranum, en samt meira ljóst í annarri, og svo bleika. Hún kláraðist næstum alveg, ég var komin með plan B ef hún skyldi ekki duga, en það slapp.

 

Fyrst prjónaði ég peysuna alveg eftir uppskriftinni, með uppgefinni prjónastærð sem eru númer 4 fyrir meðal prjónafestu nema ég jók út með reglulegu millibili í hliðunum á bolnum, því það fer betur mínum vexti. Við mátun fannst mér berustykkið alltof stórt og hálsmálið of vítt og ná of langt niður á bak. Þá varð ég fegin að hafa ekki klippt þræðina á milli litaskipta eins og ráðlagt er í uppskriftinni því ég rakti hana alla upp. Fitjaði aftur upp á hálsmálinu á prjóna nr. 3 í stað 3,5, og prjónaði fast. Svo gerði ég upphækkun að aftan og prjónaði svo berustykkið á prjóna 3,5 vel niður fyrir síðustu útaukningarumferð. Eftir það notað ég prjóna nr. 4 og smellpassar peysan núna. Á myndinni hér að ofan sést upphækkunin. Hálsmálið varð miklu meira að mínu skapi svona þrengra og með upphækkun. Ermarnar hafði ég í 3/4 sídd.


Uppskriftin er frá Eddu Lilju Guðmundsdóttur.

miðvikudagur, 4. febrúar 2026

Þvottastykki

Ég saumaði að gamni mínu í nokkur þvottastykki og gaf barnabörnunum, tvö hverju. Passaði bara að ekki færu tvö eins á hvort heimili. Gott að þekkja sundur hver á hvað. 

Þessar myndir eru í lítilli Brother saumavél sem ég á og er hún líka er útsaumsvél. Ég hef hana handa krökkunum til að sauma á ef þau langar til. Brother hefur einkarétt á Disneymyndum til útsaums og því freistaði það að hafa þær í aukavél sem ég þarf að hafa í saumaherberginu. Þvottastykkin keypti ég í Ikea.


laugardagur, 31. janúar 2026

Nálarþæfing


Í haust bað önnur tíu ára ömmustelpan mig að kenna sér að þæfa. Hana langaði svo til að geta búið til alls konar dýr og verur, og okkur kom saman um að þæfing væri góð aðferð. Sjálf hafði ég aðeins prufað að þæfa og voru það kúlur í hálsmen en þá var ekki notuð nál.


Ég kíkti því aðeins á youtube og fór svo í Liti og föndur og keypti þæfingarnál og ullarkembu í ýmsum litum og svo átti afinn stíft plast til að hlífa borðinu. Ég sýndi henni aðeins aðferðina og svo tók hún við og skildi eins og skot út á hvað þetta gekk og byrjaði á að þæfa kött (en ekki hvað) og notaði nokkra liti. Hún er mjög flink og skapandi og notar netið til að læra hvernig á að gera allt mögulegt.


Hér er kötturinn kominn og auðvitað þurfti að hann að fá félagsskap og þess vegna var búin til mús.
Svo hélt framleiðslan áfram þegar hún var komin heim.
 


föstudagur, 23. janúar 2026

Prjónaðir pottaleppar

Þessa pottaleppa fann ég á síðu garnstudio.com. Ég prjónaði aðra eftir uppskrift á síðunni þeirra fyrir nokkrum árum og það eru með bestu pottaleppum sem ég á. Þeir eru prjónaðir í hring og lagðir tvöfaldir saman og saumaðir á endunum og verða þykkir og góðir. Ég notaði Muskat frá Gallery spuna og prjóna nr. 3.