




Svo var ég búin að prjóna þessar peysur, kannski ekki mjög sumarlegar, en það verður að hafa það. Þær eru bara prjónaðar af fingrum fram, byrja efst á þeim öllum og svo getur maður bara gert alls konar útgáfur, stuttar eða síðar ermar, mismunandi kraga, hneppt að framan eða aftan, stroff eða garðaprjón og líka kjóla.
Þessar dúkkur geta alltaf bætt við sig fötum. Mér finnst líka gaman að taka smá rispur í dúkkufatagerð, enda þurfa ömmustelpurnar að hafa úr einhverju að velja. Þessar tvær stærri eru 18” dúkkur og sú minni 14” að stærð. Ég nota tommumálin frekar því þá finn ég miklu meira úrval þegar ég leita að sniðum og uppskriftum.
Buxnasniðið á þessa litlu bjó ég nú eiginlega til sjálf, var með einhvern grunn sem passaði engan veginn þannig að ég breytti og minnkaði þangað til þetta varð sæmilegt.
Peysurnar á stærri dúkkurnar eru eftir fríum uppskriftum á Ravelry, og þá bleiku reyndi ég að hafa í stíl við hinar en þurfti að gera tvær tilraunir til að láta hana passa. Þá gulu gerði ég svo bara eftir sama grunni.
Það er alltaf gaman að grípa í dúkkufataprjón. Ég sá þessa lambhúshettu á handavinnusíðu vinkonu minnar og fékk uppskriftina frá henni. Byrjaði á þessari rauðu, en hún varð bara sú fyrsta af mörgum.
Fínt að grynnka aðeins á afgöngunum sem alltaf safnast upp. Krakkarnir urðu strax hrifnir af þeim og fengu þær allar með sér heim, ein náðist ekki einu sinni á mynd.
Uppskriftin er fyrir Baby Born, en þær fóru nú samt á alls konar bangsahausa. Kormákur þvottabjörn var mjög flottur með sína þegar hann fór heim.
Svo fengu fleiri dúkkur föt….uppskriftirnar að þessum dressum fékk ég á Ravelry með því að leita að uppskriftum á 14” og 18” dúkkur, fullt af fríum uppskriftum þar. Peysurnar eru prjónaðar eftir sömu uppskrift, önnur er með smellum að aftan, hin hneppt að framan.
Prjónastærðin var 2,5, reyndar gefið upp fyrir 2,25, en ég á þá ekki sem kemur ekki að sök því ég prjóna frekar fast.
Einhvern tíma í haust fór ég í tiltektir og fann í prjónapoka nokkrar ókláraðar prjónaflíkur á dúkkur. Ég dreif mig í að klára þær því ég þoli ekki að eiga hálfkláraða handavinnu hingað og þangað. Þetta voru sem sagt flíkurnar á myndinni hér að ofan. Ég bætti reyndar við tveimur nærbolum eins og þessum bleika.
Og fyrst ég var komin i dúkkufataprjón þá hélt ég áfram og prjónaði þrjár peysur, allar úr mismunandi garnafgöngum, og pils.
Flíkurnar efst í vinstra horninu á myndinni hér að ofan eru úr Klompelompe bókum, en peysurnar og nærbolirnir eru úr Sy&strikk dukkeklær eftir Anne Grethe Gaaserud.Mér finnst alltaf gaman að sauma dúkkuföt. Það eru alltaf not fyrir þau á þessu heimili og nóg til af efnivið. Ég á alls konar efnisafganga frá fatasaumi, sérstaklega jerseyefnum.
Þessi föt eru öll úr jerseyefnum, engar smellur eða riflásar, sniðin mjög einföld og fljótlegt að sauma þau. Sokkabuxurnar eru meira að segja eins að aftan og framan svo auðveldara sé fyrir börn að klæða dúkkurnar. Mér finnst samt fallegra að hækka buxur að aftan á Baby born og myndi gera það ef ég saumaði fleiri. Joggingbuxurnar hér að neðan voru líka eins að framan og aftan, en ég hækkaði þær upp að aftan. Betri þannig.
Sniðin keypti ég hjá Ida Victoria, fékk þau á PDF formi sem mér finnst allt í lagi þegar um svona litlar flíkur er að ræða, ekkert að líma, bara prenta út og klippa. Bolirnir hér að ofan eru allir saumaðir eftir sama sniði, bara mismunandi ermasídd og á einum er þeim alveg sleppt.
Í þessar nærbuxur er hægt að nota alveg ótrúlega litla búta. Í sníðapakkanum eru tvö snið, annað fyrir boxernærbuxur.
Nú geta dúkkurnar verið í nærbuxum í stíl við kjólana.
Hér þurfti ég að rifja upp hvernig maður setur smellur á flíkur.
Joggingbuxurnar og þetta pils hafa stroff í mittið.
Uppskriftin er úr litlu hefti sem heitir Dukkestrikk og er frá Klompelompe. Garnið er Sandnes merino og Drops merino extra fine.
Ég átti garn, akkúrat passlegt í þessa peysu fyrir Baby Born, og skellti í hana handa yngstu ömmustelpunni sem varð fimm ára í síðasta mánuði. Ég setti hana í pakkann ásamt fleiri afmælisgjöfum.
Fyrir mörgum árum prjónaði ég sömu uppskrift úr bláu garni og er sú peysa neðar á síðunni undir flokknum Dúkkuföt. Uppskriftin er eftir Målfrid Gausal og er ókeypis á síðunni hennar.
Ég notaði Drops baby merino garn og prjóna nr, 2.5. Svo stytti ég ermarnar á þessari, byrjaði á ermakúpuli strax eftir síðustu útaukningu, og er varla að það dugi. En mér finnst dúkkan voða krúttleg í þessu.