Heildartala yfir síðuflettingar

fimmtudagur, 30. ágúst 2018

Skokkar


Nú eru ömmustelpurnar mínar búnar að fá skokk í afmælisgjöf, en þær áttu allar afmæli í sumar.
Uppskriftin heitir Tankestreg, og fæst hún í Litlu Prjónabúðinni, og sömuleiðis garnið, sem heitir Geilsk bomuld og uld.
Blái skokkurinn er í 2 ára stærð, og hinir 4 ára.
Bæði uppskriftin og garnið gerðu það að verkum að mjög gaman var að prjóna þá.

mánudagur, 20. ágúst 2018

Litlar töskur

Ég saumaði þessar litlu töskur handa litlu ömmustelpunum mínum þremur.
Þær þurfa oft að taka ýmislegt með sér þegar þær eru á ferðinni.
Útfærslan er upp úr sjálfri mér. 
Aðalverkefnið var að finna efni í allar sem var með sama heildarsvip.
Tölurnar fékk ég í Gallery Spuna, en efnin eru keypt í Virku og Storkinum.