Ég sýndi hérna peysu aðeins neðar á síðunni sem heitir Vinkonupeysan. Hún fer það vel á mér að ég gerði aðra í gráu, en ákvað að bleyta hana og leggja til svona eins og maður gerir við prjónaðar og heklaðar flíkur. Ég þvoði hana í köldu vatni í vaskafati og vatt á vægri stillingu í þvottaneti í vél. Og viti menn, hún hljóp svo illa að ellefu ára sonardóttir mín fór heim í henni, ég komst ekki einu sinni í hana. En hún var fín á henni. En svo er ég auðvitað vinkona þessarar ömmustelpu eins og allra hinna barnabarnanna þannig að peysan fór á réttan stað.
Heildartala yfir síðuflettingar
mánudagur, 21. september 2026
Fleiri vinkonupeysur
Svona leit upprakið út…..
þriðjudagur, 1. september 2026
Heimferðarsett
Þetta heimferðarsett prjónaði ég handa lítilli vinkonu sem fæddist í lok júlí. Móðirin valdi litina og líka uppskriftirnar, sem voru að mestu þær sömu og ég prjónaði á eldri bróður hennar fyrir nokkrum árum.
Uppskriftirnar eru að mestu leyti úr hefti Prjónajónu með heimferðarsettum sem hún gaf út fyrir nokkrum árum. Bleika húfan er þó úr heftinu Babystrik på pinde 3, 1. hefti, eftir Lene Holme Samsøe.
Dekkri liturinn er ekki eins grár og hann virðist á sumum myndanna heldur meira út í grænt. Garnið er Drops Baby Merino, sem ég elska að prjóna úr.
Svo lét ég fylgja með lestarsokka í öðrum lit. Uppskriftina má finna á netinu með einfaldri leit.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)






