Heildartala yfir síðuflettingar

miðvikudagur, 8. júlí 2026

Símatöskur í útsaumsvél



Ég var búin að horfa lengi á þessar hliðartöskur eða símatöskur frá Kreative Kiwi og langaði að gera þær fyrir barnabörnin áður en þau yrðu of gömul fyrir þennan stíl. Þau eru núna ellefu, níu og sjö ára, ein orðin og hin að verða. 

 

Það hefur líka staðið í mér að yngsta er strákur, og en mamma hans sagði mér bara að gera eins handa honum. Hann er reyndar ekki kominn með síma, en allar stelpurnar eiga iphone þannig að þær setja símana sína í þetta. Ég hafði hans tösku bara strákalegri á litinn.


Ég gerði prufutösku og fannst hún of lítil og vissi að ein stelpan var með frekar stóran síma, svo ég lengdi töskurnar og stærðin reyndist mjög fín fyrir alla. Bakið var samkvæmt uppskriftinni einfalt, en ég sá í prufutöskunni að það væri ekki fallegt og hafði það því úr tvöföldu efni. Eins voru böndin í upphaflega munstrinu bara einfaldar bómullarsnúrur eða satínbönd, í fastri lengd. Ég ákvað að setja á þær almennileg bönd, fjórföld með flíselíni og festa þau á D-hringi og hafði þau stillanleg hvað lengdina varðar. 


Og þegar ég hafði verið að kíkja eftir svona íhlutum þegar ég átti leið í föndurbúðir þá sá ég ekki neitt sem passaði. Þá datt mér það snjallræði í hug að kannski væri hægt að þrívíddarprenta það sem mig vantaði, og ég fann það sem ég leitaði að og gat ráðið breiddinni! Ég miðaði við að böndin yrðu 2,5 cm á breidd og prentaði íhlutina fyrir þá breidd.


Að gamni mínu prentaði ég svo töskuskraut og hengdi í rennilásana.


Útsaumsmunstrið gerði ráð fyrir að stafur yrði saumaður í mitt blómið þannig að hver taska hafði sitt eigið útsaumsskjal. Hvert barn fékk því tösku með upphafsstafnum í sínu nafni.

 

Ég hefði getað prentað D-hringina og lengdarstillinn í ýmsum litum, en ég stillti mig og hafði allt lítið áberandi til að þetta yrði ekki of mikið. En ég hefði getað það…..


Töskurnar sjálfar eru semsagt gerðar alfarið í útsaumsvélinni og þar festi ég líka böndin sem halda D-hringjunum með þeim á, en restina græjaði ég svo í öðrum vélum.