Heildartala yfir síðuflettingar

laugardagur, 31. október 2026

Haust og hrekkjavaka 🕷️🕸️👻🎃 í 3D

 
Þrívíddarprentarinn stoppar ekki. Nú er það haustið og hrekkjavakan sem gefa tilefni til að búa til eitthvað skemmtilegt. Hér að ofan er haustlegt gluggaskraut sem prýðir eldhúsgluggana. Ég skipti út nokkrum sinnum á ári í þessum gluggum, bæði eftir árstíðum og hátíðum.
 

Graskerin á efri myndunum eru svo skemmtileg því þau eru tvískipt og lokast í spíral þannig að það er hægt að færa miðjustykkið á milli og fá alls konar samsetningar.


Kettirnir eru svo vígalegir og skemmtilegir ofan á hurðakörmunum að ég held ég leyfi þeim að vera aðeins áfram.


Svo eru hérna tvær gerðir af fiktidóti handa barnabörnunum. Mjög vel hannað og hægt að snúa hverjum hluta í allar áttir, hvolfa og setja í hvaða stöðu sem er. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli