Heildartala yfir síðuflettingar

Sýnir færslur með efnisorðinu Körfur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Körfur. Sýna allar færslur

sunnudagur, 9. ágúst 2026

Þrívíddarprentað fyrir handavinnuna

Mjög fljótlega eftir að ég fékk þrívíddarprentarann fann ég þessar körfur í gagnasafninu sem fylgir prentanum og gerði fyrst þessa bleiku. Hún er svo frábær í alla staði að ég fór með mína gömlu keramikskál beint á nytjamarkað. Ég bjó svo til aðra minni til að geta geymt hana ofan í hinni, en ég þarf oft að vera með tvær í gangi.

 

Prjónamerki, bæði opin og lokuð, hef notað þau mikið. Þau sem ég gerði sjálf eru fínlegri en þessi gömlu.


Í fyrradag prentaði ég box þar sem ég geymi eingöngu prjónamerki, en þau voru innan um nálar, skæri og margt annað í ágætri dós, en það er betra að hafa þau sér.


Dúllustrekkjara af alls konar gerðum og stærðum er hægt að prenta eftir þörfum og smekk, og hvítu körfuna, sem er með svokölluðu býkúpumynstri, get ég notað undir allt mögulegt.


Svona körfubotnar eru til með alls konar lögun og af ýmsum stærðum. Mig langaði til að prófa að hekla í svona og notaði fjórfalt bómullargarn, alls konar afganga og skipti bara um lit þegar einhver kláraðist. Nóg eftir samt.


Svo er það þessi snilld. Ég á slatta af rennilásum í metratali og þetta eru rúllur til að geyma þá á. Það er svo miklu auðveldara að hafa yfirlit yfir þá á svona rúllum í plastboxinu þar sem þeir eru geymdir heldur en í pokum á sama stað.


Sleðarnir eru svo geymdir í miðjunni og lokað fyrir, ekkert ruglast saman. Allt á sínum stað.


Og ég hafði allt í mismunandi litum bara af því að það er skemmtilegra fyrir augað.



Ég var búin að kaupa einhverja græju úr málmi til að festa á borð til að auðveldara væri að setja sleðann á rennilásinn en hef ekki einu sinni prófað hana. Sá að ég gat prentað þessa og það var ekki spurning um að gera það frekar.  Svínvirkar.


fimmtudagur, 28. maí 2026

Bambu Lab A1 mini og prentaraherbergið



Í næst síðustu færslu sagði ég frá því að synir mínir og þeirra fólk gáfu mér þrívíddarprentara í sjötugsafmælisgjöf. Prentarinn heitir Bambu Lab A1 mini, alveg frábær græja. Þegar ég hafði átt hann í tvo mánuði hafði ég prentað samtals í 155 klukkustundir, hvorki meira né minna!  Allt hefur tekist vel, engin vandræði, bara gleði.

 

Þegar ég fékk hann sá ég strax að prentarinn þurfti að fá að standa uppi við, ávallt reiðubúinn, og því lagði ég höfuðið í bleyti. Í húsinu okkar er lítil innigeymsla inn af holinu og var hún stöðugt að fyllast af dóti sem við þurftum ekki beinlínis að hafa við hendina. Þarna var líka töluvert af leikföngum sem barnabörnin voru hætt að nota. Við ákváðum því að endurskipuleggja hana, rifum allt út, máluðum (sem varð útundan þegar við fluttum hingað), eiginmaðurinn flotaði gólfið, setti vínilflísar og gólflista, svo nú átti ég glænýtt prentaraherbergi. Þetta flotta og stöðuga borð keyptum við í Ikea, alveg frábært fyrir prentarann.


Ég fækkaði hillum, tók samt þrjár hillur frá fyrir prentrúllur, samt nóg pláss fyrir allt sem þarf að vera þarna. Prentrúllurnar sem ég nota eru úr PLA plasti sem búið er til úr maíssterkju og getur brotnað hratt niður í náttúrunni. Ég er reglulegur gestur í 3D verk sem selur prentara og efni í þá og bæti smám saman í litasafnið. Allt sem ég hef prentað er fengið úr appi sem fylgir prentaranum og er sent í hann gegnum wifi. Svo fylgir líka forrit, Bambu studio, þar sem hægt er að vinna með og stilla ýmislegt. Það þriðja er aðgangur að Maker world þar sem er ógrynni af hlutum sem hægt er að prenta og opna í Bambu Studio, en ég nota appið mest, sem heitir Bambu Handy og ég er með í ipadinum. Þar fæ ég endalausar hugmyndir að verkfnum og safna þeim saman í möppu í appinu.


Ég prentaði svona statíf fyrir rúllurnar sem tengjast saman innbyrðis og get komið smtals 27 rúllum fyrir í þessum þremur hillum.


Þessa Mexíkómöndrur (Aaxolotl) gerði ég 14 stykki af, barnabörnin fengu eina hvert, restina gaf ég í verkefnið Jól í skókassa sem konurnar frá Úkraínu sjá um ásamt íslenskum konum. Þær gerði ég úr mjög skemmtilegu efni sem skiptir litum.


Það er alveg ógrynni af svona liðamótadýrum sem hægt er að prenta í 3D prentara og gaman að fygjast með hvernig hann gerir það.


Hér er sitt lítið af hverju: kettirnir eru með prjónaáferð, mjög flottir, þeir hafa allir eignast nýtt heimili. Sitjandi hjörtun eru ætluð litla fólkinu mínu og boxin líka.


Hvítu körfuna langaði mig til að prófa og hekludótið passaði vel í hana. Hjartaparið hef ég þar sem það á heima. Svo gerði ég fjórar svona langar Mexíkómöndrur því allir vildu fá eina.


Hér er ég að prenta lítinn vorkrans því það var nagli í vegg en ekkert á honum. Svo er ég endalaust hrifin af krönsum og er rétt að byrja.


Það væri hægt að hafa hann í vorlegri lit, en einhvern vegin finnst mér alltaf fallegt að hafa svart sem áherslulit á heimilinu. Allt verður fallegra ef svörtu er blandað inn á milli.


Hér eru nokkrar verur í prentun og myndin sýnir svolítið hvernig þetta verður til. Þær eru líka með liðamótum.


Svo er það Barbídótið.  Ömmustelpurnar leika sér ekki mikið með Barbí en ég var (og er) Barbístelpa og á nóg af dóti og þær taka oft allt fram þegar þær eru í heimsókn og raða öllu svo flott upp að ég tími varla að taka það saman á eftir. Þess vegna er gaman að bæta aðeins í smáhlutina fyrir þær. Þvottakörfur, náttborð, hundaskálar og prentari sem var prentaður svona í einu lagi með opnanlegu loki og lausum blaðabakka. Ótrúlegt. Maðurinn minn skar svo út blöð sem pössuðu. Hann sér líka um að líma augu í smádýrin og fleira, þetta er svona fjölskyldusamvinna. Á kassnum sem prentarinn kom í var límdur borði frá 3D verk þar sem á stóð: Varúð, 3D prentun er ávanabindandi. Það er alveg gild aðvörun.


Hér er svo að lokum mynd af nýja herberginu, litlu kompunni, sem er ekki nema 3,5 fermetrar og í hinum endanum er hún áfram geymsla, reyndar að miklu leyti fyrir mitt dót, eins konar framlenging af saumaherberginu, eitthvað af leikföngum og svo því sem tilheyrir heimilinu. Gott skipulag er aðalatriði, og svo er auðvitað háaloft og bílskúr líka. En ég er ekkert á leiðinni þangað😉

miðvikudagur, 15. júní 2022

Hekluð pottahlíf

Í síðustu viku fann ég skemmtilega Youtube rás Gunnhildar Hannesdóttur, sem er handavinnukennari og frábær handavinnukona. Í einum þættinum sagði hún frá og sýndi heklaðar pottahlífar. Ég hafði einmitt verið að leita í bílskúrnum að hentugri pottahlíf fyrir pelargóníuna á pallinum en ekki fundið.

Auðvitað var þetta málið - hekluð pottahlíf! Ég gramsaði í afgöngunum, sem minnka stöðugt, því ég hef unnið mikið úr þeim undanfarið og gefið líka, en fann þetta eldgamla bómullargarn ofan í kistu og heklaði pottahlífina í dag. 


 Ég notaði fjóra þræði saman og heklunál nr. 6, en ég átti ekki stærri. Svo þrælaði ég þessu saman með fastahekli og útkoman varð þessi. Skemmtilegt verkefni.

laugardagur, 14. janúar 2012

Þæfð karfa og bókakaup

Ég er löngu búin að kveðja jólin, en átti samt eftir að sýna þessa þæfðu körfu, sem ég prjónaði fyrir jól. Uppskriftin er af Drops jóladagatalinu og notaði ég tvöfaldan plötulopa en fór að öðru leyti eftir uppskriftinni. Ég þurfti reyndar að þvo körfuna þrisvar til að fá hana í góða stærð. Lopinn var fallega jólarauður, sérlitaður fyrir Handprjónasambandið.
Svo lét ég verða af því að fá mér þessa bók. Hún er mjög falleg, og mér finnst mjög gaman að prjóna kúlur. Ég pantaði hana á Amazon í Bretlandi. Hún var fljót að skila sér og kostaði ekki nema 3400 krónur, komin í mínar hendur. Hlakka til að prjóna upp úr henni.
Svo ætla ég líka að sýna þessa bók. Hana pantaði ég líka af Amazon í Bretlandi og kostaði hún 1830 kr. Í henni er fullt af teppum, sum flokkuð eftir þjóðernisstíl.
Þetta er samt teppið sem olli því að ég keypti bókina, teppi í sænskum sveitastíl. Ég VERÐ að hekla það.