Heildartala yfir síðuflettingar

mánudagur, 25. apríl 2022

“Crazy” bútateppi með útsaumsívafi

Það höfðu safnast fyrir hjá mér ýmsar prufur úr útsaumsvélunum sem tóku pláss í skúffum en ég tímdi ekki að henda. Hvað gerir bútasaumari þá? Jú, býr til blokkir og gerir teppi. Flestar prufurnar voru reyndar úr Pfaff creative 1.5 vélinni, aðeins tvær úr nýju Sapphire 85 saumavélinni. Ég tók þær sem hægt var að nota og setti þær í miðjuna á “crazy quilt” blokk. Ákvað að finna blokkir í EQ8 forritinu og sauma með pappírssaum, hafði tvær gerðir sem ég raðaði upp til skiptis. Svo notaði ég enn einu sinni afganga en skipti efnunum í tvennt til að forðast að sama efni snertist í tveimur blokkum þegar ég saumaði þær saman.

Síðan valdi ég nokkra af þeim fallegu og fjölmörgu skrautsaumum sem eru í Epic 980Q vélinni til að stinga og notaði til þess Cotty 30 tvinna. Stungan varð að vera “crazy” líka, og svakalega var gaman að sitja við og klára þetta.

Merkimiðann aftan á saumaði ég að sjálfsögðu í útsaumsvélinni, og yfirleitt reyni ég að velja liti í myndina á miðanum sem passar við bakefnið. Það er skýringin á frekar skrítnu litavali hjá mér að þessu sinni, en bakefnið er mjög litríkt og skrautlegt.

 

föstudagur, 8. apríl 2022

Húfur

Tvær ömmustelpur langaði í nýjar húfur, og amma var ekki lengi að prjóna þær handa þeim. Þessi að ofan er húfan Bella úr bókinni Prjónað af ást eftir Lene Holme Samsø. Hún er prjónuð úr Drops merino extra fine á prjóna nr. 4 og 3,5. Stærðin er á 4-8 ára.

Þessi hér að ofan heitir Hubbabubba-lue. Hún er úr Klompelompes vinterbarn, líka prjónuð úr Drops merino extra fine á prjóna nr. 3 og 3,5. Stærðin er á 3-6 ára.

Báðar dömurnar völdu bæði uppskrift og lit sjálfar. Garnið valdi ég því mér finnst það alveg sérlega skemmtilegt í húfuprjón.


 

þriðjudagur, 5. apríl 2022

Sporabækur


Þegar ég fékk Sapphire 85 útsaumsvélina mína gerði ég ráð fyrir að skrautsporin í henni væru nokkurn vegin þau sömu og í Epic 980Q vélinni, og það yrði óþarfi að gera sérstaka sporabók fyrir hana. Ég fór nú samt að nördast aðeins og bera saman sporaflokkana. Þá kom í ljós nokkuð sem ég átti ekki von á: það voru fleiri spor í Sapphire vélinni en í Epic vélinni. Þetta kallaði á sporabók fyrir hana líka, en ég ákvað að sauma bara þau spor sem ekki voru í Epic vélinni og merkja þau með flokki og númeri. Öll sporin í Epic vélinni voru líka í Sapphire vélinni. Þegar upp var staðið voru þetta um 100 spor sem munaði.

Svo gerði ég forsíður fyrir hverja vél í útsaumsvélinni. Munstrin fékk ég ókeypis hjá Kreativ Kiwi.

Mér finnst mjög gaman að að fara í gegnum það sem vélin getur gert, prófa það allt. Mæli með þessu.