Heildartala yfir síðuflettingar

Sýnir færslur með efnisorðinu Saumaherbergið. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Saumaherbergið. Sýna allar færslur

sunnudagur, 9. ágúst 2026

Þrívíddarprentað fyrir handavinnuna

Mjög fljótlega eftir að ég fékk þrívíddarprentarann fann ég þessar körfur í gagnasafninu sem fylgir prentanum og gerði fyrst þessa bleiku. Hún er svo frábær í alla staði að ég fór með mína gömlu keramikskál beint á nytjamarkað. Ég bjó svo til aðra minni til að geta geymt hana ofan í hinni, en ég þarf oft að vera með tvær í gangi.

 

Prjónamerki, bæði opin og lokuð, hef notað þau mikið. Þau sem ég gerði sjálf eru fínlegri en þessi gömlu.


Í fyrradag prentaði ég box þar sem ég geymi eingöngu prjónamerki, en þau voru innan um nálar, skæri og margt annað í ágætri dós, en það er betra að hafa þau sér.


Dúllustrekkjara af alls konar gerðum og stærðum er hægt að prenta eftir þörfum og smekk, og hvítu körfuna, sem er með svokölluðu býkúpumynstri, get ég notað undir allt mögulegt.


Svona körfubotnar eru til með alls konar lögun og af ýmsum stærðum. Mig langaði til að prófa að hekla í svona og notaði fjórfalt bómullargarn, alls konar afganga og skipti bara um lit þegar einhver kláraðist. Nóg eftir samt.


Svo er það þessi snilld. Ég á slatta af rennilásum í metratali og þetta eru rúllur til að geyma þá á. Það er svo miklu auðveldara að hafa yfirlit yfir þá á svona rúllum í plastboxinu þar sem þeir eru geymdir heldur en í pokum á sama stað.


Sleðarnir eru svo geymdir í miðjunni og lokað fyrir, ekkert ruglast saman. Allt á sínum stað.


Og ég hafði allt í mismunandi litum bara af því að það er skemmtilegra fyrir augað.



Ég var búin að kaupa einhverja græju úr málmi til að festa á borð til að auðveldara væri að setja sleðann á rennilásinn en hef ekki einu sinni prófað hana. Sá að ég gat prentað þessa og það var ekki spurning um að gera það frekar.  Svínvirkar.


þriðjudagur, 6. júní 2023

Veggteppi

Á veggnum bak við borðið þar sem ég hef úsaumsvélina saumaði ég teppi sem var að hluta gert í þeirri vél. Nú er ég búin að taka af plássinu sem teppið hafði, teppið orðið of stórt og hefur fengið annan stað. Það er nefnilega þannig að þegar maður á útsaumsvél safnast að manni smátt og smátt töluverður tvinni. 

Útsaumstvinnakeflin eru frekar stór og finnst mér best að geyma þau í hillu. Ég keypti tvær smíðajárnshillur fyrir nokkrum árum á netinu, ætlaðar fyrir naglalakk. Þær taka samtals 60 kefli og eru fullar. Þá bætti ég við myndahillu úr Ikea, fyrst einni. Þær eru akkúrat nógu djúpar til að hægt sé að koma fyrir tveimur röðum af keflum í hillu. Svo bætti ég annarri við í vor og þá saumaði ég þetta litla teppi og lét það passa á vegginn. Blokkina fékk ég í EQ8 forritinu og saumaði með pappírssaumi. Eftir á sá ég að litapallettan í því passar við tvinnakeflin sem hanga allt í kringum það í þessu horni.


 Merkið komið á sinn stað, búið til í Spíralprógramminu í Platínum útsaumsforritinu,

þriðjudagur, 23. nóvember 2021

Husqvarna Designer Sapphire 85

Fyrir 12 árum var ég stödd í Pfaff að læra á saumavél sem ég var nýbúin að kaupa, og vorum við Silla, Sigurlaug heitin Gröndal, sem var að kenna á vélarnar, að ræða um saumavélar og ýmislegt tengt þeim. Þá segir hún við mig: “Svo þegar þú verður eldri þá færðu þér útsaumsvél.”  Ég hélt nú ekki, það væri sko ekkert fyrir mig. “Jú, þið gerið það allar þegar þið eldist.”  Ég er vissulega að eldast, eins og allir, og er greinilega komin á útsaumsvélaaldurinn.  Þetta byrjaði reyndar fyrir þremur árum þegar ég keypti Pfaff creative 1.5 vélina mína, sem ég hef haft ótrúlega gaman af að sauma út með. Hún er mjög fín, en mig langaði í vél með meiri möguleika og sem tæki stærri ramma. 

En Pfaff vélin mín kveikti áhugann á útsaum hjá mér, og nýjustu vélarnar eru orðnar svo flottar að maður fellur í stafi yfir þeim. Þetta eru orðnar tölvur sem stjórnað er af skjánum, og margt sem áður var einungis gert í forriti á tölvu gerir maður nú á skjánum í vélinni sjálfri. Ég get sent vélinni útsaumsmunstur úr tölvunni gegnum wi-fi og saumað út. Vélin getur líka sjálf tekið við munstrum af netinu. Í haust keypti ég mér Husqvarna Designer Sapphire 85 í Pfaff. Hún er ótrúlega skemmtileg, og ég hef saumað eitthvað á hana næstum daglega síðan ég fékk hana. Hún hefur endalausa möguleika, og með henni fylgja 629 útsaumsmynstur, og auk þess er hægt að sauma öll 680 skrautsporin úr saumahlutanum í henni í rammanum, letur og meira að segja hnappagöt. Svo er hægt að hafa aðgang að 6-7000 munstrum í gegnum áskrift á MySewnet o.s.frv. Og það sem er svo frábært er að ég get gert svo til alveg það sama í þessari vél og hægt er að gera í Epic2 og Ruby 90 vélunum hvað varðar útsaumshlutann, en það eru dýrustu vélarnar, en hún tekur samt ekki breiðasta rammann. Þær eru hins vegar stærri og meiri vélar hvað varðar vélarnar sjálfar. En ég á Epic 980 Q vélina mína til að sauma á, þessa ætla ég bara að nota fyrir útsaum. 

Í gegnum árin hefur það oftar en ekki farist fyrir hjá mér að merkja bútasaumsteppin mín, þó ekki alltaf.  Ég tók mig því til og byrjaði að merkja þau sem eru ómerkt og gerði merkin í útsaumsvélinni. Það hefur verið fín æfing fyrir mig og hef ég lært ýmislegt á því. Merkin fyrir ofan með blóma-og hjartamunstrinu eru t.d. gerð þannig að ég valdi ákveðið form úr vélinni, hring í þessum tilfellum (líka hægt að velja ferning, stjörnur, hjörtu, blóm…) og lét vélina raða munstrum á útlínur formsins, blómum og hjörtum. Á merkinu með einfalda stjörnusporinu setti ég á sama hátt spor úr saumahluta vélarinnar á línu sem er í laginu eins og alda.

Á tveimur efri merkjunum, sem eru eins, valdi ég munstur og sneri öðru þeirra til að ramma inn stafina.
Skæramunstrið keypti ég á netinu fyrir löngu, en það er eina munstrið sem ég hef keypt þannig, gerði það bara til að prófa.

 Tvö efri merkin eru í munstursafninu í vélinni en ég bætti bara stöfunum innan í. Tvö neðri eru gerð með sama hætti og þau að ofan, valdi form og lét vélina raða munstrum á þau.

Og eins hérna, setti stafi innan í tómt hjarta, sexhyrningurinn er form sem ég raðaði einföldu spori úr saumahlutanum á. - Og ég er enn að merkja, nóg eftir.


Til að geta bætt þessari vél við þurfti að endurhugsa saumaaðstöðuna. Útsaumsvélin, sem getur tekið ramma sem er 35 cm að lengd, þarf töluvert pláss. Því kom til kasta eiginmannsins, sem alltaf er tilbúinn með hamar, bor og sög, og setti hann upp nýtt borð fyrir vélina, 72 cm djúpt, og skápa fyrir ofan. Þarna var kommóða, full af handavinnudóti og efnum, og er hún núna í innigeymslunni, við hliðina á saumaherberginu (ég er smám saman að leggja undir mig húsið). Núna er rúmt um allar vélarnar sem ég hef uppi við, en coverlock vélina geymi ég uppi á skjalaskápnum, nota hana svo sjaldan. Og litla teppið, sem ég sýndi í síðustu færslu, er svo á veggnum bak við vélina, og er að hluta til saumað í henni. 
Ég hlakka bara til að læra meira og prófa mig áfram með allt sem hægt er að gera í vélinni, þetta verður gaman 🙂
 

miðvikudagur, 13. október 2021

Sporabók

Ég gerði það mér til skemmtunar nú í haust að sauma öll sporin sem er að finna í Pfaff creative 1.5 útsaumsvélinni minni. Þau eru 150 talsins fyrir utan leturgerðirnar. Ég nota þessa vél nær eingöngu fyrir útsaum, hef sáralítið saumað á hana að öðru leyti, enda hef ég aðra vél til þess. En þetta var gaman, og alltaf gott að fara í gegnum það sem hægt er að gera í vélinni eins og hnappagöt og að festa tölu í vél.


 

fimmtudagur, 11. febrúar 2021

Husqvarna Viking Amber Air S 400

Í mörg ár var ég búin að horfa á Babylock overlockvélar á netinu sem gátu þrætt gríparana sjálfar með lofti og óskað þess að ég ætti svona vél. En þetta merki fæst ekki á Íslandi og þar með var málið úr sögunni. Þó Huskylock 936 vélin mín sé frábær, með mjög fallegt spor, saumaráðgjafa og stilli sjálf t.d. mismunaflutning og sporlengd eftir efnisgerð, þá var bara stundum rosalega erfitt og tímafrekt að þræða hana. Einstaka sinnum tókst það strax en oftar þurfti ég að gera nokkrar tilraunir. Þá miklar maður meira fyrir sér að þræða hana næst sem veldur því að hún er sjaldnar notuð og þá æfist maður minna í að þræða. Það kom oft fyrir að mér datt í hug að grípa hana, leit á tvinnann og sá að ég þyrfti að skipta og hætti við.

En...nú eru breyttir tímar, einkaleyfi Babylock á loftþræðingu er útrunnið og nú hafa aðrir framleiðendur sett þetta í sínar vélar. Fyrir um einu og hálfu ári sá ég að Husqvarna var komið með loftþrædda overlockvél. Ég trúði varla mínum eigin augum og vissi strax að ég myndi einhvern tíma kaupa mér hana. Ég beið samt aðeins og fylgdist með en fékk hana svo í lok september á síðasta ári í Pfaff.

Og hún er bara frábær!!  Ég byrjaði á að æfa mig í dúkkufatasaum, sem ég hefði aldrei gert á eldri vélinni minni. Gat meira að segja saumað stroffhring í hálsmál án vandkvæða. Ég bar saman vélarnar til að reyna að átta mig á af hverju þetta væri svona auðvelt á nýju vélinni og komst að því að hnífurinn sker heilum sentímeter nær nálunum en á gömlu vélinni og það munar öllu.

Núna er ég enga stund að græja vélina fyrir það sem ég vil sauma og skipti um tvinna eins og vindurinn. Hún er með nálaþræðara og fallegt spor sem ég þarf varla að stilla. Rúllufaldur þarf þrjár stillingar sem tekur fimm sekúndur að framkvæma. Og svo er hún bara svo falleg ❤️ Mér finnst það skipta máli.


https://youtube.com/playlist?list=PLvE6jwvXA4CFvqwi9kNxzxcBiCgTwE5Oy
 Hér er hægt að sjá mjög góð kennslumyndbönd fyrir vélina á Youtube.

mánudagur, 2. september 2019

Sporabók - Stitch Bible


Fyrir nokkru saumaði ég öll sporin sem eru í Husqvarna Epic 980Q saumavélinni minni.
Ég hef gert þetta áður með aðrar vélar sem ég hef átt, en ekki svona skipulega.

Vélin hefur helling af saumum, og í þessu verkefni kom í ljós að ég á allt sem ég þarf til að geta saumað það sem hún býður upp á.

Svo er gott að fara í gegnum alla sauma. 
Maður lærir af því, og er þá búinn að prófa allt.


Sporunum er skipt í 19 flokka í saumavélinni.

Þeir eru merktir með bókstöfum.

Ég notaði ákveðinn lit á tvinna fyrir hvern flokk, og setti bókstafinn fremstan þegar nýr flokkur byrjaði. Ég hafði alltaf flíselín undir efninu.
Þegar öll sporin voru saumuð þá saumaði ég saman tvö spjöld, þannig að til varð framhlið og bakhlið.


Hér að ofan eru spor sem gera ráð fyrir litlum steinum sem maður límir á efnið.
Keypti þá í Twill í nokkrum litum.

Svo eru pallíettuspor, vélin saumar pallíettuna á.
Lenti reyndar í vandræðum með að finna réttar pallíettur, hún tekur ekki kúptar, og ég fann hvergi annað en þannig í búðunum hér.  Endaði á að kaupa sléttar á Ebay.

Ég get saumað þvottaleiðbeiningar.....

Svo er hægt að sauma í ýmsar áttir án þess að snúa efninu.

Og hér er eitt dæmi um hvað hægt er að gera, notaði grófan ullarþráð.

Hér geymi ég svo allar prufurnar.

laugardagur, 15. júní 2019

Skæri


Ég hef alltaf átt góð skæri, ekki of mörg, bara vönduð og þau sem ég þarf.
Ég þurfti ekki að kaupa þessi tvö, mér finnst bara þetta nýja útlit á skærum svo rosalega flott.
Hins vegar eru þau fanta góð, blaðið er rifflað og það er eins og að klippa vatn að nota þau.
 Þau koma frá Karen Kay Buckley, og ég pantaði þau af Drop, sem áður hét Massdrop.
 

föstudagur, 25. janúar 2019

10 ára bloggafmæli


Í dag eru tíu ár frá því ég stofnaði þetta blogg.
Þegar ég var að velta fyrir mér nafninu á því fannst sonum mínum, sem hjálpuðu mér með að setja það af stað, liggja beint við að kalla það Saumaherbergi Hellenar, þar sem ég hafði þá fyrir nokkrum árum fengið langþráðan draum uppfylltan, að fá eigið saumaherbergi.
Þá bjuggum við í öðru húsi, og það herbergi var byggt sérstaklega fyrir mig þegar við bættum nýrri hæð ofan á húsið okkar.
Nú eru liðin sjö ár síðan við fluttum þaðan og í litla húsið okkar annars staðar í Hafnarfirði.
Hingað fluttum við barnlaus, og því notum við hjónin hvort sitt barnaherbergið fyrir áhugamál okkar.

Í tilefni bloggafmælisins ætla ég því að sýna myndir úr saumaherberginu mínu eins og það lítur út núna.

Á myndinni fyrir ofan sést aðal saumaborðið mitt. Það er rafmagnsborð sem ég keypti í Hirzlunni síðastliðið vor, og er mjög gott að geta stillt hæðina eftir þörfum.  Ef ég er t.d. að stinga teppi, lækka ég það. Þá þarf ég ekki að að fella vélina niður í borð eins og ég hafði áður gert.

Þetta er sníðaborðið mitt, sem maðurinn minn smíðaði handa mér fyrir fjórtán árum, þegar ég fékk nýja herbergið.  Það er vel út hugsað og frábært að vinna á því.  Fyrst var ég með minni skurðarmottu, en fékk mér stóra í Hvítlist fyrir tveimur árum.  Straubrettið gerði ég sjálf.

Hér eru svo bútasaumsefnin, raðað eftir litum. Það er varla að þau komist fyrir lengur, enda nýbúin að fylla rækilega á eftir margar heimsóknir á útsöluna í Virku áður en hún hætti.

Hér gefur svo að líta saumavélakostinn. Þetta langa, hvíta borð setti maðurinn minn upp fyrir mig fyrir nokkrum árum, þegar þekjusaumsvélin bættist í hópinn, svo allar vélarnar væru aðgengilegar.  Reyndar hefur rauða vélin bæst við síðan þá, en þær eru aldrei allar í notkun í einu, svo ég færi þær bara til á borðinu eftir þörfum. 


Kommóðan og hillan ofan á geyma handavinnutengda hluti. Ég á alls konar útsaumsefni og garn, prjónagarn, fataefni, bækur og blöð, sem hafa safnast fyrir í áranna rás. Handavinna hefur verið áhugamál mitt frá því ég var lítil.

Eftir jólin sóttum við þennan gamla skjalaskáp, sem maðurinn minn átti úti í bílskúr, og settum hann í saumaherbergið.  Þvílíkur happafengur, ég þurfti viðbótarhirslur fyrir bútasaumsefni og ekki síst fataefnin mín, sem ég á eftir að sauma úr. Hann hefur fjórar stórar  skúffur sem ég á svo eftir að skipuleggja betur.


Þetta póstbox átti pabbi minn, og nú lét ég loksins verða af því að mála það hvítt, en það var áður viðarlitað og frekar illa farið. Það passar vel undir litlar stikur.

Svo er það nýjasti meðlimurinn í saumavélafjölskyldunni.
Þetta er Pfaff creative 1,5 útsaumsvél, keypt í desember.
Ég hef aldrei verið spennt fyrir útsaum í vél, þangað til núna.  Forsagan er sú að ein ömmustelpan, á fjórða ári, hefur sýnt saumavélum mikinn áhuga frá því hún var pínulítil.  Núna fær hún t.d. að velja munstur á Epic vélinni með því að fletta og velja, eins og á spjaldtölvu, amma saumar, og sú litla ýtir svo á klippitakkann.
En Epic vélin er ekki fyrir börn.  Hún er of aðgengileg, of kraftmikil og of sjálfvirk.  Ég var búin  að sjá fyrir mér að ég myndi kaupa ódýra vél til að hafa hérna þegar stelpurnar mínar þrjár færu að prófa að sauma sjálfar (ef það verður þannig).  Ég komst samt að þeirri niðurstöðu að það væri ekkert spes að eyða tugum þúsunda í aukavél sem sæti svo bara á gólfinu þess á milli og væri til einskis gagns fyrir mig.
Þá mundi ég eftir þessari Pfaff vél, sem er ekki of aðgengileg, frekar einföld og það þarf að lyfta fætinum handvirkt o.s.frv.  En hún getur bróderað líka, og það væri þá nýtt fyrir mig og viðbót við það sem ég hafði.  Ég dreif mig því í  Pfaff til  að kaupa hana á meðan hún fengist, dyggilega studd af eiginmanninum, enda verðið alveg frábært. Og það er bara mjög skemmtilegt að bródera í vél!  
Þetta er líka fínasta saumavél og hefur fengið mjög góðar umsagnir.
Auk þess hefur hún fengið hönnunarverðlaun!