Heildartala yfir síðuflettingar

laugardagur, 24. október 2026

Vorflétta tvö


 Í fyrra prjónaði ég sjaltrefil eftir uppskrift sem heitir Vorflétta og er eftir Auði Björt. Ég notaði hann svo til látlaust síðasta vetur svo ég prjónaði annan til að eiga til skiptanna. Uppskriftin gerir ráð fyrir að ekki þurfi meira garn en eina 400 metra og 100 gramma hespu, og það gekk upp og vel það. Ég notaði 4 mm prjóna og handlitað garn úr litla lagernum mínum og man ekkert hvaðan það kom.  Það skemmtilega við uppskriftina er að sjaltrefillinn er eins á réttunni og röngunni.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli