Þetta er Vinkonupeysan frá Flóði og fjöru. Ég keypti garnið í hana, uppskrift og heklunál, allt í einum pakka, á Garnival í byrjun mars. Uppskriftin gerir ráð fyrir að maður mæli sjálfan sig aðeins út og byrji svo á að hekla eins og maður haldi að passi. Ég heklaði peysuna og setti hana saman og komst að því að ég vildi hafa mína víðari, en á módelinu er hún þröng og frekar stutt. Ég tók hana því aftur í sundur og rakti upp fram- og bakstykki, og bætti inn í fjórum kössum alls á víddina. Ermarnar víkkaði ég jafnmikið. Svo hafði ég peysuna síðari að aftan og alla síðari í heildina. Í mína peysu fóru ca. 350 grömm eða þrjár og hálf dokka. Hún smellpassar og er alveg eins og ég vil hafa hana.
Garnið heitir Friendly Yarn frá Bobbiny. Ég hef líka séð það í Skartsmiðjunni í Reykjanesbæ. Heklunálin er nr. 6, og stykkin eru hekluð saman með nál nr. 5,5.
Peysan er alveg svört þótt hún virðist gráleit á myndinni. Það er fljótlegt og gaman að hekla hana en heldur leiðinlegra að setja hana saman, ég endaði á að nota nál nr. 4,5 í það verk.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli