Ég sýndi hérna peysu aðeins neðar á síðunni sem heitir Vinkonupeysan. Hún fer það vel á mér að ég gerði aðra í gráu, en ákvað að bleyta hana og leggja til svona eins og maður gerir við prjónaðar og heklaðar flíkur. Ég þvoði hana í köldu vatni í vaskafati og vatt á vægri stillingu í þvottaneti í vél. Og viti menn, hún hljóp svo illa að ellefu ára sonardóttir mín fór heim í henni, ég komst ekki einu sinni í hana. En hún var fín á henni. En svo er þessi ömmustelpa auðvitað vinkona mín eins og öll hin barnabörnin, þannig að peysan fór á réttan stað.
Svona leit upprakið út…..



Engin ummæli:
Skrifa ummæli