Heildartala yfir síðuflettingar

laugardagur, 20. október 2018

Fjölnota töskur


Ég tók mig til um daginn og saumaði fjölnota töskur úr gömlum gardínum, sem lágu uppi á háalofti.
Ég hef áður saumað innkaupatöskur, og þær hafa reynst mjög vel, sérstaklega þegar maður man eftir að setja þær aftur út í bíl eftir innkaup.
Ég renndi þeim saman í overlockvélinni, en gekk frá höldum og kanti að ofan í saumavélinni.


Ég saumaði þessa sérstaklega undir sunddótið fyrir nokkrum mánuðum, og hafði hana nógu stóra til að rúma hreinan alklæðnað að auki þegar svo ber undir,

Engin ummæli:

Skrifa ummæli