Ég prjónaði vesti á litla ömmustrákinn til að nota núna í haust, þegar kólnar í veðri.
Uppskriftin er í Babystrik på pinde 3, 1. hefti.
Stærðin er á 0-3 mánaða og ég prjónaði úr Lanett.
Hér kúrir hann í vestinu, og er í sokkum af systur sinni. Þeir eru reyndar að verða of litlir á hann, svo amma prjónar bara stærri.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli