Lítil frænka mín varð 5 ára í júní. Ég prjónaði handa henni skokk í afmælisgjöf.
Uppskriftin er úr bókinni Børnestrikk på pinde nr. 3,5-4 og heitir Bella top.
Garnið heitir Sandnes Alpakka. Stærðin er á 6 ára.
Mig vantaði lítið teppi á vegg í svefnherberginu, og rakst þá á myndir af þessari blokk víða á netinu.Þetta heitir Swoon block, en ég veit svo sem ekkert meira um hana, en hún virðist hafa verið viðfangsefni í einhvers konar quilt along eða CAL á netinu.Ég teiknaði hana upp í EQ7, og saumaði með pappírssaum.Fyrst stakk ég bara í saumför og ætlaði að láta það duga, en mér finnst teppið mikli fallegra meira stungið.