Það var gaman að prjóna þetta sjal, uppskriftin vel gerð og ég er farin að plana annað í öðrum litum.
Það var gaman að prjóna þetta sjal, uppskriftin vel gerð og ég er farin að plana annað í öðrum litum.
Ég saumaði nokkra litla púða fyrir nokkru og hafði í körfu fyrir barnabörnin með leikföngunum hér heima. Þau hafa leikið sér ótrúlega mikið með þá, og ein ömmustelpan bað mig um að gera einn handa sér til að taka með heim. Þá saumaði ég auðvitað handa öllum og urðu þeir tveir á mann fyrir rest. Aðal málið hjá þeim var að fá að velja sér dýr og litinn á tvinnanum. Myndirnar eru ekki flóknar, en höfða greinilega til þeirra. Einfalt er stundum best.
Á veggnum bak við borðið þar sem ég hef úsaumsvélina saumaði ég teppi sem var að hluta gert í þeirri vél. Nú er ég búin að taka af plássinu sem teppið hafði, teppið orðið of stórt og hefur fengið annan stað. Það er nefnilega þannig að þegar maður á útsaumsvél safnast að manni smátt og smátt töluverður tvinni.
Útsaumstvinnakeflin eru frekar stór og finnst mér best að geyma þau í hillu. Ég keypti tvær smíðajárnshillur fyrir nokkrum árum á netinu, ætlaðar fyrir naglalakk. Þær taka samtals 60 kefli og eru fullar. Þá bætti ég við myndahillu úr Ikea, fyrst einni. Þær eru akkúrat nógu djúpar til að hægt sé að koma fyrir tveimur röðum af keflum í hillu. Svo bætti ég annarri við í vor og þá saumaði ég þetta litla teppi og lét það passa á vegginn. Blokkina fékk ég í EQ8 forritinu og saumaði með pappírssaumi. Eftir á sá ég að litapallettan í því passar við tvinnakeflin sem hanga allt í kringum það í þessu horni.
Í tilefni sýningarinnar voru hannaðar og seldar útsaumspakkningar með munstrum frá Karólinu. Ég fékk tvær svona pakkningar í jólagjöf og lauk við að sauma báðar í febrúar. Svo hálfpartinn gleymdi ég þeim uppi í hillu en ætla að láta ramma þær inn. Það er líka hægt að nota þær í púða, en ég á svo marga útsaumaða púða að það er ekki á það bætandi. En það fer nú að verða lítið pláss á veggjunum líka….hlýt samt að koma þeim einhvers staðar fyrir.
Ég átti afgang af gráa efninu og þegar ég fór að mæla sá ég að hann myndi duga í miðsíddina af peysunni. Hún er bæði styttri, nær niður á mið læri, og með styttri ermar, mjög þægileg sídd. Efnið dugði nákvæmlega í hana.