Heildartala yfir síðuflettingar

mánudagur, 31. desember 2018

Leikskólakjólar


Ég fékk pöntun frá annarri tengdadótturinni upp á bleikan leikskólakjól. Litla daman vill bara fara í bleikum kjól í leikskólann og treður sér í alltof lítinn kjól á morgnana.
 

Auðvitað saumaði amma kjól, og annan á hina þriggja og hálfs árs dömuna sína, bara í öðrum lit.
 

Efnin eru keypt í Föndru, og sniðið líka, Onion 20047.
Stærðin er í 104, en þær verða fjögurra ára í sumar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli