Þessa skemmtilegu græju rakst ég á í Bambu Handy appinu sem fylgir prenturunum frá Bambu Lab. Þetta er áhald sem oft er bara gert úr pappa með skærum og hefur gat í miðju og átta raufar. Með sjö þráðum fléttast svo band sem smám saman birtist undir disknum þegar maður færir böndin til eftir ákveðnum reglum. Þessi aðferð byggir á japanskri hefð.
Ég prentaði strax nokkra diska, átti tvo pakka af 15 gramma hnotum af bómullargarni og greip svo börnin næst þegar þau komu. Þau náðu þessu eins og skot, líka 7ára strákurinn, og þetta gekk hratt hjá stelpunum þremur, 9 og 11 ára.
Svo heklaði ég úr þreföldu bómullargarni og notaði heklunál nr. 3,5. Karfan smellpassar fyrir 20 litlar hnotur.






Engin ummæli:
Skrifa ummæli