Heildartala yfir síðuflettingar

fimmtudagur, 17. janúar 2019

Gammósíur


Aðra tengdadótturina langaði að spara þær buxur og fá aðrar án útprjóns til að nota á leikskólanum til að hafa innan undir hlífðarfötum. 
Það eru sem sé þessar, prjónaðar úr Klompelompe ullargarni á fjögurra ára.

fimmtudagur, 10. janúar 2019

Poki


Milli jóla og nýárs var ég aðeins að æfa mig í útsaumi í vél.
 

Til að prufan yrði að einhverju hafði ég hana nógu stóra til að geta gert úr henni poka.
Ég hafði pokann tvöfaldan, þ.e. fóðraði hann að innan.
 
  
Fangamarkið er líka saumað í útsaumsforriti, en krosssaumsmunstrið er bara skrautsaumur í vélinni.


Eiginlega minnir þetta mig helst á handavinnupokann, sem ég saumaði í barnaskóla eins og allar stelpur þessa lands á þeim tíma.
Núna eru í honum hálfprjónaðir pottaleppar í bláu og hvítu.

miðvikudagur, 2. janúar 2019

Saumaáhöld


Gleðilegt ár!

Aftur kom yngri sonurinn og fjölskylda hans mér á óvart á jólunum með því að gefa mér alls konar hluti fyrir saumaskapinn. Hann keypti þetta á Massdrop eftir að hafa litið í kringum sig í saumaherberginu fyrir nokkrum mánuðum til að skoða hvað ég ætti.  Hann er reyndar langt á undan mér í græjuspekúlasjónum, því ég er nýbúin að uppgötva þessar stikur, sem eru notaðar fyrir Ruler Foot Quilting, og var farin að spá í þær á Ebay, en þá er hann búinn að kaupa þær fyrir þónokkru síðan.  Til að geta notað þær til að stinga teppi þarf sérstakan fót, sem Husqvarna Viking mun setja á markað snemma á þessu ári.  Þegar ég uppfærði Epic vélina mína um daginn var búið að setja inn í hana sérstaka stillingu fyrir þannig fót, Free Motion Ruler Foot.
Hlakka til að prófa þetta.

Svo voru í pakkanum númeraðir títuprjónar, sem ég hef aldrei átt áður, alltaf notað gula límmiða til að merkja ef ég hef þurft að raða upp bútum og lengjum áður en ég sauma.
Svo er frábær fatakrítarpenni næstur á myndinni með mismunandi litum krítum.  Notaði hann þegar ég sneið kjólana sem ég sagði frá í síðustu færslu.
Næstur er þarna límpenni fyrir efni, sem mig hefur svooo mikið vantað, en ekki átt.
Lengst til hægri er svo merkipenni með mjög fínum oddi sem er góður til að strika með í gegnum stensla o.fl., aðeins 0,9 mm.

mánudagur, 31. desember 2018

Leikskólakjólar


Ég fékk pöntun frá annarri tengdadótturinni upp á bleikan leikskólakjól. Litla daman vill bara fara í bleikum kjól í leikskólann og treður sér í alltof lítinn kjól á morgnana.
 

Auðvitað saumaði amma kjól, og annan á hina þriggja og hálfs árs dömuna sína, bara í öðrum lit.
 

Efnin eru keypt í Föndru, og sniðið líka, Onion 20047.
Stærðin er í 104, en þær verða fjögurra ára í sumar.

miðvikudagur, 26. desember 2018

Tilda sommerkjole


Þetta eru jólakjólar þriggja ára stelpnanna minna í ár.
Uppskriftin er úr Klompelompe sommerbarn, og heitir Tilda sommerkjole.
Það var ekki auðvelt að mynda þá í skammdegismyrkrinu, og er annar djúpgrænn og hinn milliblár, alls ekki svona gráblár eins og myndin sýnir.

Fyrst ætlaði ég að nota Mandarin petit og var komin vel niður fyrir handveg á fyrri kjólnum þegar ég uppgötvaði litagalla í garninu.  Þá nennti ég ekki að taka annan séns og fór yfir í aðra garntegund, Capri frá Katia.  Það er heldur grófara, en kjólarnir komu ágætlega út.  Yfirleitt er ég mjög ánægð með Mandarin petit og var svekkt yfir að geta ekki notað það.  Mér finnst þetta Capri bómullargarn gefa frá sér svolitla ló, sem ég veit ekki alveg hvað þýðir.
En stelpurnar voru flottar í kjólunum, fín vídd neðst á þeim og flottir þegar þær snúa sér í hring.

mánudagur, 10. desember 2018

Bútasaumsdúkur


Þessi dúkur er búinn að vera lengi í vinnslu.
Ég hef alla vega náð að sauma hann á þrjár saumavélar.


Upphaflega átti þetta að verða veggteppi, en varð of stór til þess fyrir minn smekk.
Hann endaði í 136 x 136 sm.
Hann passar mjög vel á borðstofuborðið.
 

Hugmyndina fékk ég úr blaði frá Fons and Porter´s Love of Quilting.
Ég teiknaði blokkirnar í EQ forritinu og notaði pappírssaum.

miðvikudagur, 28. nóvember 2018

Heklaðir kragar


Þegar ég ætlaði að fara að leita á þessum krögum á blogginu, fann ég þá hvergi, hafði gleymt að setja þá hér inn. 
Ég heklaði þá á ömmustelpurnar þrjár í janúar á þessu ári.
Þeir eru í tveimur stærðum, heklaðir úr Mandarin petit og aðferðina sá ég á Youtube.

laugardagur, 17. nóvember 2018

Everyday dress


Í þó nokkurn tíma hef ég séð snið á netinu sem heita "Made by Runi".  
Mér sýnist þetta vera sænsk kona, búsett í Noregi sem rekur þetta fyrirtæki ásamt fjölskyldu sinni.
Mig hefur lengi langað til að prófa snið sem heitir Everyday dress, og lét ég verða af því fyrir nokkrum vikum að panta það.  Hún selur bæði útprentuð snið og rafræn á PDF skjölum sem maður prentar út og límir saman. Ég nenni því ekki og keypti því útprentað og fékk það sent, tók ekki nema viku að fá það hingað.
Grunnsniðið er heill kjóll í þremur síddum, eins og þessi efsti. Ég saumaði hann í mestu síddinni. Allar brúnir eru kantaðar með stroffefni.

Svo selur hún svoköllur "Add on" snið, en þá notar maður grunnsniðið af efsta kjólnum, en breytir efri hlutanum, og þá er hægt að hafa ermar (þrjár síddir mögulegar) og annað efni í toppnum ef vill.
Ég keypti sem sagt Add on pakkann líka.
Af gráa efninu keypti ég tvær síddir, var ekki viss um að ein sídd dygði, sem hún reyndar gerði, og átti ég því efni í neðri hluta á öðrum kjól, og bætti svörtu við að ofan og í ermar.

Þá sá ég að afgangurinn af svarta efninu dugði í stutterma efri topp, og í neðri hlutann setti ég efni sem ég hef átt lengi, og bryddaði með rauðu stroffefni, en hafði svart neðst.
Þetta snið býður upp á alls konar samsetningar.

föstudagur, 2. nóvember 2018

Motta undir saumavélina


Ég saumaði mottu undir saumavélina, bæði af því að það er gott að hafa mottu undir og svo er auðveldara að hnika vélinni til á borðinu. Ég hef oft haft svona undir vélunum mínum, en þá bara gripið eitthvert stykki sem ég átti.
Ýmis lítil áhöld sem ég er alltaf að grípa til við saumaskapinn, eins og sprettari, pinsettur, fingurbjörg og stiletto, voru á bakka á bak við vélina, en eru nú í vasanum lengst til hægri.  Í miðjuvasanum geymi ég litlu skærin, og vasann til vinstri nota ég til að henda í afklipptum þráðum, sem ég ryksuga svo bara upp öðru hverju.