Tvö pör af finnsku lestarsokkunum komin til réttra eigenda.
Prjónað úr Lanett á prjóna nr. 2,5.
Tvö pör af finnsku lestarsokkunum komin til réttra eigenda.
Prjónað úr Lanett á prjóna nr. 2,5.
Garnið í þessa kjóla keypti ég í Litlu prjónabúðinni og heitir það Alba.
Uppskriftin fæst þar líka, og prjónastærðin er 3,5.
Stærðin er á 0-3 mánaða.
Mér fannst liturinn svo fallegur að ég gerði bara eins á báðar ömmustelpurnar.
Ég mátti til með að hekla Bettý peysur á litlu stelpurnar mínar. Stærðin er á sex mánaða, svo þær fá aðeins að bíða.
Mæðurnar völdu sjálfar litina, en garnið keypti ég í Litlu prjónabúðinni, og heitir það Yaku 4/16 frá CaMaRose.
Tölurnar eru frá Freistingasjoppunni á Selfossi.
Uppskriftin er á Facebook, á síðunni Leikur í höndum, bæði í máli og myndum.
Um leið og ég vissi að barnabörnin mín yrðu stúlkur, fór ég og keypti garn í Lillies Top. Mig langaði mjög að prjóna þessa uppskrift, en mér finnst hún bara passa á stelpur. Ég gerði minnstu stærðina, 0-3 mánaða, og þær fóru báðar í þetta nýfæddar, og þá voru þetta eins og kjólar, en verða svo smart sem toppar með gammósíum í vetur.
Garnið heitir Engleull og fæst í Litlu prjónabúðinni, og uppskriftin er úr bókinni Babystrikk på pinde 3, sem fæst í sömu búð.
Svo þakka ég ykkur falleg komment í síðustu færslu, sem senduð mér þau :)
Ég var búin að lofa að blogga ekki meir, en af því að ég hef sýnt ýmislegt hér sem ég hef prjónað á barnabörn bræðra minna, þá fannst mér tilheyra að sýna líka það sem ég hef verið að prjóna á mín eigin barnabörn. Já, ég er orðin amma, ég á tvær nýfæddar sonardætur, báðir synir mínir eignuðust sín fyrstu börn nú í sumar, sú eldri fæddist 27. júlí, og hin 17. ágúst, en þær áttu reyndar að fæðast með eins dags millibili.
Það varð afgangur af garninu, og þá gerði ég þessar húfur, minnstu stærð, upp úr Babystrikk på pinde 3.
Og enn varð afgangur, og þessir vettlingar eru úr sömu bók. Þegar þeir voru búnir var sama og ekkert eftir af garninu.
Lítil frænka mín fékk þessa peysu frá mér í 2 ára afmælisgjöf.
Uppskriftin er úr prjónablaðinu Ýr nr. 42.
Nú hef ég bloggað í tæplega fimm og hálft ár um handavinnuna mína, og tekið þá ákvörðun að hætta að sinni.
Ég þakka samfylgdina ykkur, sem hafið heimsótt bloggið mitt!
Mér finnst ótrúlega gaman að gera þetta í saumavélinni, miklu skemmtilegra en í höndunum.
Einhvern tíma fyrir löngu keypti ég á Amazon bók, með þessum munstrum.
Ég get vel hugsað mér að gera meira af þessu og er þegar komin með hugmyndir ;).
Þetta er settið sem ég prjónaði á litla, nýfædda frændann sem ég minntist á í síðustu færslu.
Stærðin er á 6 mánaða, og garnið er Lanett.