Það var sérlega gaman að prjóna þá, byrjað efst og þess vegna gott að máta síddina. Ég notaði garnið sem gefið er upp í uppskriftinni, Dale Lille Lerke, keypt í A4, og prjóna nr. 3. Stærðirnar eru á 3-4 ára og 5-6 ára.
Heildartala yfir síðuflettingar
miðvikudagur, 28. apríl 2021
Þrír prjónakjólar - Veslemor-tunika
Það var sérlega gaman að prjóna þá, byrjað efst og þess vegna gott að máta síddina. Ég notaði garnið sem gefið er upp í uppskriftinni, Dale Lille Lerke, keypt í A4, og prjóna nr. 3. Stærðirnar eru á 3-4 ára og 5-6 ára.
þriðjudagur, 20. apríl 2021
Veggteppi
Ég er alltaf hrifin af amerísku bútasaumskonunni Eleanor Burns. Þessi blokk er frá henni og heitir Rosebuds, eða rósaknúppar. Hún er í bókinni Egg Money Quilts. Ég teiknaði hana upp í EQ8 bútasaumsforritinu til að geta ráðið stærðinni og saumað með pappírssaumi (kemur engum á óvart 😊). Blokkirnar eru 6,5 tommur á kant. Teppið allt er 37 x 37 tommur.
þriðjudagur, 13. apríl 2021
Fluffy Julie-genser
Þessa peysu prjónaði ég á aðra tengdadótturina, að hennar beiðni. Hún er úr bókinni Klompelompe Strikkefest. Mjúk og hlý og fer henni mjög vel. Peysan er prjónuð úr Lanett og Silk Mohair frá Sandnes á prjóna nr. 5 í stærðinni XS. Hún er frekar stutt og víð og ermarnar aðeins síðar.
sunnudagur, 4. apríl 2021
Páskahænur
þriðjudagur, 30. mars 2021
Húfan Ösp
Um áramótin sá ég að húfan Ösp, sem ég prjónaði á litla ömmustrákinn fyrir ári síðan, var orðin alltof lítil svo ég prjónaði aðra í janúar. Hana hafði ég í stærðinni 1-3 ára, enda er hann að verða 19 mánaða. Ég prjónaði úr Drops merino extra fine og uppskriftin er frá Knillax. Dúskinn af gömlu húfunni endurnýtti ég.
fimmtudagur, 25. mars 2021
Bútasaumsteppi í bleiku
Ég hafði það í fullri stærð eins og stráksins, það er þá bara sett tvöfalt yfir rúmið til að byrja með. Munstrið er líka þannig að það er sama hvernig það snýr. Sú stutta er fimm ára, að verða sex í sumar, og elskar allt bleikt og fjólublátt.
þriðjudagur, 16. mars 2021
Húfur og hálskragar
Stelpurnar mínar stækka og þurfa ný föt. Ég hef prjónað húfu eftir þessari uppskrift á eina þeirra áður en hún er úr Klompelompe - Strikkefest og heitir Lillemors duskelue.
Ég náði ekki að mynda þær allar saman því sú síðasta var prjónuð þegar búið var að afhenda hinar tvær.
Kragarnir eru úr Prjónað af ást og heitir uppskriftin Hálskraginn Bella. Ég prjónaði úr Drops merino extra fine.
Ein daman vildi ekki hafa dúsk á sinni húfu. Ég nota alltaf smelludúska, langbest að festa þá á og auðvelt að losa ef það þarf að þvo húfuna.
þriðjudagur, 9. mars 2021
Vettlingar
Eftir áramót prjónaði ég tvö pör af vettlingum. Herravettlingarnir eru eftir uppskrift úr litlu hefti sem Ístex gaf út þar sem lettnesk prjónamunstur eru aðlöguð að íslenska kambgarninu. Að sjálfsögðu notaði ég kambgarn og prjóna nr. 2 og prjónaði stærð L. Mér fundust þeir ætla að verða heldur langir svo ég stytti þá um hálft munstur eða sex umferðir og þurfti þá að teikna munstrið fremst á þeim aftur upp með nýrri úrtöku. En þeir smellpössuðu líka á eigandann.
Dömuvettlingarnir eru hins vegar upp úr nýju vettlingaprjónabókinni, Íslenskir vettlingar, sem kom út fyrir jólin og heitir uppskriftin Salka. Í þá notaði ég Drops Flora. Eigandinn er frekar handsmár svo ég notaði prjóna nr. 2,25, en þeir urðu heldur þröngir yfir hendina á móts við þumalinn, en passlega langir. Það er líka alltaf hættan þegar þumallinn er settur í án þess að aukið sé út við hann, þ.e. prjónaður kíll. Ég ætla að hafa það í huga í framtíðinni.
fimmtudagur, 18. febrúar 2021
Vesti
Þetta vesti fékk lítill frændi minn sem fæddist í lok nóvember. Það var prjónað á ömmustrákinn minn fyrir jólin en reyndist of lítið og gerði ég annað á hann sem ég sýni hér aðeins neðar á síðunni. Stærðin er fyrir 12-18 mánaða, en nokkuð þétt prjónað hjá mér. Garnið er Drops baby merino og uppskriftin er frá Garnstudio.




















